- Advertisement -

Kristján Þór boðaður á fund atvinnuveganefndar

…að standa við alþjóðlega samninga um aðgerðir gegn peningaþvætti og spillingu…

Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifaði:

Samherjamálið er af þeim skala og af því umfangi að íslensk stjórnmál geta ekki setið hjá aðgerðalaus.

Á málinu eru margar hliðar en grunnkjarninn í því er samt nýting á auðlind okkar allra og útdeiling á arðinum á þeirri nýtingu. Samsöfnun auðs á fárra manna hendur, í stað þess að meiri arður af nýtingunni renni í sameiginlega sjóði okkar allra er stefið í margra ára deilum íslensks samfélags um fiskveiðistjórnunarkerfið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Áhrif Samherjamálsins eigum við eftir að sjá að fullu leyti. Þar undir er skattkerfi okkar og eftirlit með því, samþjöppun í sjávarútvegi, alþjóðasamvinna sem snýst ekki bara um heilindi í þróunarsamvinnu og eftirfylgni með henni, heldur líka að standa við alþjóðlega samninga um aðgerðir gegn peningaþvætti og spillingu, náin tengsl stjórnmálanna og sjávarútvegsfyrirtækja. Stjórnarskrárbreytingar sem beðið hefur verið eftir í alltof langan tíma. Orðspor okkar á erlendri grundu. Og fleira – eins ótrúlegt það kann að hljóma.

Ég hef óskað eftir því að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra mæti sem fyrst á fund atvinnuveganefndar til að fara yfir áhrif Samherjamálsins. Til að ræða áhrif á stöðu stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins (sem er eitt umfangsmesta sjávarútvegsfyrirtæki í Evrópu) afleiðingar málsins á önnur íslensk fyrirtæki og greinina í heild. Hvort ráðuneytið hafi gripið til einhverra aðgerða vegna málsins og ef svo er, til hvaða aðgerða þá.

Hér er um að ræða mál sem er af þeirri stærðargráðu að það er afar brýnt að sjávarútvegsráðherra ræði sem allra fyrst við þingmenn í atvinnuveganefnd.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: