- Advertisement -

Kristján Þór tók völdin af Fiskistofu

Fiskistofustjóri segist enga skoðun hafa á inngripi ráðherrans.

Ekkert verður af veiðistöðvun Kleifarbergs, togara Brims, eða Útgerðarfélags Reykjavíkur eins og fyrirtækið heitir nú, eftir að Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra greip inn í og frestaði veiðibanninu sem Fiskistofa hafði ákveðið.

Ráðherrann tók völdin af Fiskistofu. Hann frestaði veiðistöðvuninni til 15. apríl í vor.

Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um málið, þar segir:

„Svipting á veiðileyfi er ekki tekin út í loftið og er byggð á gögnum málsins,“ segir Eyþór Björnsson, forstjóri Fiskistofu. „Ákvörðun um frestun réttaráhrifa veiðileyfasviptingarinnar er ákvörðun ráðuneytisins og ég hef enga sérstaka skoðun á henni.“

Ekki er öðru trúandi en fiskistofustjóri hafi skoðun á inngripi ráðherrans. Ráðherrann barði bylmingsfast á fingur hans.

Málið snýst um brottkast, eða hið minnsta meint brottkast:

„Eins og atvikum er lýst verður að ganga út frá því að um ásetningsbrot hafi verið að ræða,“ segir í ákvörðuninni og segja þeir miklu magni af fiski hafa verið hent með vitund og eftir fyrirmælum skipstjóra, segir í Fréttablaðinu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: