- Advertisement -

Kristrún: „Glöggt er gests augað“

Svo mun ég auðvitað koma víða við í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og leggja áherslu á að eiga opið samtal við fólkið í landinu um hagsmuni Íslands.

Kristrún Frostadóttir.

Krisrún Frostadóttir skrifar:

„Ég fékk góða heimsókn í Ráðherrabústaðinn í síðustu viku. Settist niður með þeim félögum Alastair og Rory sem halda úti hlaðvarpinu vinsæla The Rest is Politics.

Þeir vildu meðal annars ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst og sýn mína á hana. Ég tel að í aðild að ESB gætu falist mikil tækifæri fyrir Ísland. En eina leiðin til að fá þau tækifæri upp á borðið er að ganga til samninga. Og ég tel að Íslandi hafi aldrei verið í sterkari stöðu til þess en einmitt núna. Við ræddum líka alþjóðamálin í víðara samhengi, stöðu Bretlands eftir Brexit og nærumhverfi Íslands á Norðurslóðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Með klassískri jafnaðarmennsku.

Í seinni hluta þáttar spurðu spyrlarnir út í íslenska pólitík, jafnaðarmennsku og leið Samfylkingar frá stjórnarandstöðu til forystu við stjórn landsmála. Þar fórum við meðal annars yfir hvernig breytingar í Samfylkingu lögðu grunninn að nýjum sigrum. Með klassískri jafnaðarmennsku. Til að styrkja Ísland allt.

Viðtalið er nú aðgengilegt á öllum helstu veitum. Ég vona að þið getið gefið ykkur tíma til að hlusta – og endilega látið mig vita hvað ykkur finnst

Annars er ég spennt fyrir komandi vikum. Það er nóg af verkefnum í ríkisstjórn og í mínu ráðuneyti. Þing kemur saman í september og ný þingmálaskrá er í undirbúningi sem verður gaman að kynna. Svo mun ég auðvitað koma víða við í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og leggja áherslu á að eiga opið samtal við fólkið í landinu um hagsmuni Íslands. Hlakka til að hitta ykkur og ræða málin.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: