Árleg viðhaldsskuld miðað við allt eðlilegt ástand er metin á 20 milljarða og þangað ætlum við að vera komin árið 2027.
Arna Lára Jónsdóttir.
Alþingi:

„„Við ræsum vélarnar“ er yfirskrift nýrrar samgönguáætlunar. Þetta eru orð að sönnu; metnaðarfull og fullfjármögnuð samgönguáætlun með raunhæfum verkefnum er forsenda þess að við náum árangri. Þetta er risastórt. Öflugir innviðir eru forsenda samkeppnishæfni þjóðarinnar og nýkynnt samgönguáætlun ber sannarlega þess merki að við séum að renna inn í nýtt tímabil framfara og sóknar í þágu öryggis landsmanna og verðmætasköpunar. Helsti styrkleiki þessarar samgönguáætlunar er að hún er fjármögnuð ólíkt fyrri áætlun sem var forgangslisti, t.d. jarðganga, og var ófjármögnuð og ekkert nema óskalisti,“ sagði Arna Lára Jónsdóttir Samfylkingu á Alþingi fyrir skemmstu, undir dagskrárliðnum; Störf þingsins.
Kyrrstaðan er rofin.
„Við erum að ræsa vélarnar. Við erum að laga vegina með stórauknum framlögum til viðhalds og vetrarþjónustu. Hafin er stórsókn í viðhaldi vega til að vinna upp þá miklu innviðaskuld sem er metin a.m.k. upp á 200 milljarða ef farið er eftir mati Vegagerðarinnar. Skuld sem núverandi ríkisstjórn erfði frá fyrirrennurum sínum. Árleg viðhaldsskuld miðað við allt eðlilegt ástand er metin á 20 milljarða og þangað ætlum við að vera komin árið 2027. Þetta er helmingshækkun. Vetrarþjónusta verður stórbætt með verulegri innspýtingu. Gert er ráð fyrir að framlag til vetrarþjónustu verði aukið um 14 milljarða á fyrsta tímabili áætlunarinnar. Vinnureglur vetrarþjónustu verða endurskoðaðar svo þær taki betur mið af breyttum þörfum samfélagsins sem er nauðsynlegt. Við erum að fara að stofna innviðafélag. Þannig hefjum við stórframkvæmdir eins og Sundabraut og byrjum að bora aftur jarðgöng á Íslandi. Kyrrstaðan er rofin. Þetta eru mikil tíðindi sem byggja á erfiðum og stórum ákvörðunum um forgangsröðun. Mikilvægar stórframkvæmdir í öllum landshlutum, fækkun einbreiðra brúa, farnetsamband tryggt á öllum stofn- og tengivegum og svona lengi mætti telja. Það eru svo sannarlega bjartir tímar fram undan.“