- Advertisement -

Lifum ekki í stéttlausu samfélagi

„Það hefur verið lífseig hugmynd að við búum í stéttlausu samfélagi. Það hefur aldrei verið raunin og við erum sannanlega ekki öll á sama báti. Sumir njóta svo mikils arðs af sameiginlegum auðlindum að hægt er að kaupa heilt sjúkrahús á meðan þau sem búa til arðinn veigra sér við að fara til læknis af því það er of dýrt. Sumir hafa örlög einstakra bæjarfélaga í hendi sér á meðan aðrir eru í átthagafjötrum vegna óboðlegs húsnæðismarkaðar.“

Þetta segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, í nýjum pistli sem birtur er á heimasíðu Alþýðusambandsins.

„Flest viljum við búa í stéttlausu samfélagi af því það er í samræmi við hugmyndir okkar um sanngirni og réttlæti. Góðu fréttirnar eru þær að við getum sannmælts um að stefna þangað og kjarasamningar eru kjörið tækifæri til þess. En til þess þurfum við að viðurkenna að við erum ekki öll á sama báti, við erum ekki ein stétt, sumir hafa það hreinlega afleitt á meðan aðrir maka krókinn. Við getum líka, ef við viljum, ákveðið að hér skulu laun duga fyrir framfærslu, fólk eiga kost á góðu húsnæði, hafa aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu og menntun og geta notið lífsins án þess að vinna sér til húðar. Við höfum breytt samfélaginu oft á síðustu áratugum, stundum til hins verra en oft til hins betra. Tækifærið til breytinga er núna, grípum það.“

Þú gætir haft áhuga á þessum




Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: