- Advertisement -

Lilja Rafney Vg vill selja báða bankana

„Ég held að draumur margra, mín og annarra, um einhvern samfélagsbanka sé tálsýn því að ríkið mun og hefur ekki haft neitt með það að gera hvernig rekstri bankanna er hagað í sinni eigu og hefur trúlega ekki möguleika á því.“

„Látum ekki klúðrið í síðustu sölu á Íslandsbanka eyðileggja fyrir að fjármunir í bönkum nýtist frekar almenningi í landinu til uppbyggingar í framtíðinni,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem nú er varaþingamaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi.

„Hvers vegna á ríkið að eiga banka og binda fjármuni sína í fjármálastofnunum sem þeir fengu t.d. í stöðugleikaframlaginu? Ríkið hefur engin áhrif á rekstur, vaxtastig, útlán eða almenna þjónustu, viðskiptakjör við almenning í landinu. Fjöldi útibúa hefur verið lokað undanfarin ár og ríkið ekkert haft um það að segja,“ sagði Lilja Rafney.

„Eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum er metinn í dag á um 354 milljarða kr. og ég verð að segja það að ég er komin á þá skoðun að það sé hagur almennings í landinu til lengri tíma litið að ríkið selji í skrefum allan eignarhluti í þessum fjármálastofnunum þegar komin verður ný löggjöf sem tryggir að bankasýsluklúðrið endurtaki sig ekki og almenningur geti treyst því að fá sem hæst verð fyrir sinn hlut og það sé allt gegnsæi í fyrirrúmi og uppi á borðinu. Við eigum að nota þessa fjármuni til að byggja upp innviði og velferðarkerfið í landinu. Löggjafinn hefur frá hruni verið að setja öflugra regluverk og það þarf að halda því áfram, sérstaklega að efla neytendaverndina og tryggja enn frekara gagnsæi í viðskiptakjörum og allri þjónustu við fólk og fyrirtæki.“

…peningunum betur varið…

„Ég held að draumur margra, mín og annarra, um einhvern samfélagsbanka sé tálsýn því að ríkið mun og hefur ekki haft neitt með það að gera hvernig rekstri bankanna er hagað í sinni eigu og hefur trúlega ekki möguleika á því. Við þurfum þetta fjármagn til innviðauppbyggingar í landinu, til fjölda málaflokka, og peningunum er betur varið í framfarir og aukna velsæld fyrir fólkið í landinu frekar en að binda fjármuni í bankarekstri á vegum ríkisins sem við höfum ekkert um að segja. Jú, við fáum auðvitað einhvern arð, gætum á móti losað okkur við aukinn vaxtakostnað af lánum,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: