- Advertisement -

Má sem sagt ekki kúka í klósettin?

Samfélag: Sveitastjórn Voga á Vatnsleysuströnd hefur sent frá sér brýnt erindi:

„Sveitarfélagið Vogar vill vekja athygli íbúa á mikilvægi þess að eingöngu sé hent salernispappír í klósett. Því miður hefur borið á því að ýmiss konar úrgangi, svo sem blautþurrkum, pappírshandklæðum og öðrum hlutum, sé hent í klósett.

Slík notkun veldur verulegum vandamálum í fráveitukerfinu. Dælur sem sjá um að flytja frárennsli stíflast þegar óviðeigandi efni berast í kerfið, sem getur leitt til bilana, aukins kostnaðar og óþæginda fyrir íbúa.

Við biðjum íbúa eindregið um að huga að því hvað fer í klósettið. Einföld regla gildir: aðeins salernispappír á heima þar. Með samstilltu átaki getum við komið í veg fyrir óþarfa truflanir og tryggt að fráveitukerfið virki sem skyldi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: