- Advertisement -

Megum ekki framselja ákvörðunarvaldið

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálstæðisflokksins:

„EES-samningurinn tryggir aðgang að innri markaðnum og Ísland á að efla viðskipti og samstarf við þjóðir beggja vegna Atlantshafsins.“

„Við stöndum nú frammi fyrir ákvörðun um hvort hefja eigi á ný vegferð að inngöngu í Evrópusambandið. Þann 29. ágúst kjósum við um hvort leggja eigi af stað inn í ferli sem hefur skýra stefnu og kallar á verulegt framsal ákvörðunarvalds.

Síðustu dagar hafa svipt hulunni af einu stærsta ágreiningsefninu. Michiel Hoogeveen, þingmaður hollenska þingsins, spurði Rob Jetten forsætisráðherra beint hvort afstaða Hollands væri sú að sameiginlega sjávarútvegsstefnan stæði óhögguð og að ríki sem vildu fulla aðild að Evrópusambandinu yrðu að gangast undir hana. Svar Jettens var skýrt já. Hollenska þingið samþykkti síðar, með yfirgnæfandi meirihluta, ályktun sem fól ríkisstjórninni að staðfesta á vettvangi Evrópusambandsins að sameiginlega sjávarútvegsstefnan, þar á meðal reglur um aðgang að hafsvæðum og fiskimiðum, væri óaðskiljanlegur hluti regluverks sambandsins í aðildarviðræðum.

Þá kom fram í svörum Mariu Reumert Gjerding, umhverfisráðherra Danmerkur, þann 12. júní sl. að ekkert núverandi aðildarríki ESB hefði fengið varanlega undanþágu frá regluverki sambandsins á sviði sjávarútvegs svo vitað væri.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Utanríkisráðherra svaraði þessum tíðindum ekki efnislega. Hún beindi spjótum sínum þess í stað að Morgunblaðinu og sagði afstöðu forsætisráðherra Hollands ekki samræmast þeim samtölum sem hún hefði átt við Hollendinga og aðra innan Evrópusambandsins.

Vandinn er sá að ráðherrann hefur ekki viljað upplýsa þing og þjóð með skýrum hætti um þessi samtöl. Það er því ekki hægt að ætlast til þess að ótilgreind samtöl vegi þyngra en opinber orð forsætisráðherra Hollands og afdráttarlaus afstaða hollenska þingsins eða umhverfisráðherra Danmerkur.

Hagur þjóðarinnar skiptir mestu máli

Þegar öllu er á botninn hvolft snýst málið þó um meira en sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Það snýst um hver setur lögin, hver ræður yfir auðlindunum og hver ber ábyrgð gagnvart íslenskum kjósendum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur skýra afstöðu: Hag þjóðarinnar og yfirráðum hennar yfir auðlindum sínum er best borgið utan ESB. Um leið eigum við að vera opin, alþjóðleg og virk í samstarfi. EES-samningurinn tryggir aðgang að innri markaðnum og Ísland á að efla viðskipti og samstarf við þjóðir beggja vegna Atlantshafsins.“

Greinin hér er vænn hluti nýrrar Moggagreinar Guðrúnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: