
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
„Barátta Sjálfstæðisflokksins er nefnilega ekki annað en krossferð fyrir hærra verðlagi, minni samkeppni, minna frelsi og uppbyggingu múra.“
Með andstöðunni gegn aðild tryggði hún sér veglegt sæti í frægðarhöll sérhagsmuna við hlið sérhagsmuna Bjarna.
„Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skipti um skoðun til að öðlast aukin völd í samfélaginu. Þetta gerði Bjarni Benediktsson einnig á sínum tíma. Bæði voru stuðningsmenn aðildar að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar. En til að verða formaður Sjálfstæðisflokksins og uppfylla eigin valdadrauma þá var þeim gert að skipta um skoðun. Aðlögun að Valhallar ættarsveitinni kallaði á útgufun lífsskoðana í anda Vísindakirkjunnar.
Þegar Guðrún Hafsteinsdóttir var í stjórn Samtaka iðnaðarins þá skrifaði hún upp á stuðning við aðilda að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar. Svo fékk hún sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins og umpólaðist á leið sinni upp á við. Með andstöðunni gegn aðild tryggði hún sér veglegt sæti í frægðarhöll sérhagsmuna við hlið sérhagsmuna Bjarna.
Í grunninn þá snýst viðsnúningur Kjörís-drottningarinnar um vernd á 30% tollamúr á innfluttan mjólkurís. Barátta Sjálfstæðisflokksins er nefnilega ekki annað en krossferð fyrir hærra verðlagi, minni samkeppni, minna frelsi og uppbyggingu múra.“