- Advertisement -

„Mjög auðugir menn stofna hóp gegn ESB-aðild“

„Ríka fólkið þarf að fá frið fyrir fólki sem vill fá betri kjör.“

Kolbeinn Reginsson.

Kolbeinn Reginsson skrifaði:

Andsinnar sameinast nú undir forystu forríkra manna sem eiga nánast nóg af Íslandi til að þurfa ekki að hafa sérstakar áhyggjur af vöxtum, matarreikningum eða því hvort launin endist út mánuðinn.

Gríðarlega eignamikið fólk, sem á nóg til að bíta og brenna í um það bil tvær aldir án þess að þurfa að vinna einn einasta dag, ætlar nú að beita sér af mikilli fórnfýsi fyrir því að venjulegt fólk fái ekki einu sinni að kanna hvort mögulegt sé að skapa sér örlitla hagsbót með nánara Evrópusamstarfi.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Félagarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Halldór Benjamín Þorbergsson.

Þeir kalla þetta baráttu fyrir fullveldi þjóðarinnar. Það vill bara svo skemmtilega til að núverandi kerfi hefur reynst þeim sjálfum einstaklega vel. Háir vextir, veik króna, takmörkuð samkeppni og verndaðir markaðir eru jú miklu bærilegri þegar maður á bankareikninginn en ekki yfirdráttinn.

Boðskapurinn til almennings er því einfaldur:

Við höfum það afskaplega gott. Verið svo væn að breyta engu.

Og til að tryggja að venjulegt fólk fái örugglega að „ráða sínum málum“ verður auðvitað að koma í veg fyrir að það fái að kjósa um að halda viðræðum áfram, sjá samningsniðurstöðu og taka síðan upplýsta ákvörðun.

Það væri nefnilega hættulegt lýðræði. Fólk gæti komist að þeirri niðurstöðu að fullveldi felist líka í því að fá að velja sjálft, en ekki bara hlusta á þá sem hafa mest að missa á breytingum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: