- Advertisement -

Mótmæli til að krefjast réttlætis

Ætla að mótmæla hýrudrætti TR á fátækasta fólkinu.

Boðað er til fyrstu hádegismótmælanna við hús Tryggingastofnunar kl. 12:10 á morgun.
Tryggingastofnun ríkisins skerti lífeyri hjá öryrkjum vegna búsetu utan Íslands í meira en tíu ár þrátt fyrir ábendingar um að það væri ólöglegt. Umboðsmaður Alþingis tók undir umkvartanir öryrkja og loks úrskurðaði velferðarráðuneytið að skerðingin hafi verið ólöglega og að Tryggingastofnun ætti að greiða fólkinu fullan lífeyri.

En ekkert hefur gerst. Þrátt fyrir að fólkið sem mátti þola skerðinguna sé meðal fátækasta fólki á landinu og hafa allra síst efni á að lána ríkissjóði peninga hefur ekkert af öryrkjunum fengið greitt það sem tekið var af þeim, ekki krónu.

Sýnum þessu fólki samstöðu og mætum til hádegismótmæla við Tryggingastofnun að Laugavegi 114 og mótmælum því að endalaust sé troðið á þeim sem standa veikast í þessu samfélagi. Tökum undir kröfur öryrkjanna: Skilið peningunum sem þið tókuð!

Mótmælin byrja klukkan 12:10 og þeim verður lokið klukkan 12:50. Fólk getur því skotist frá í matarhléinu og varið því til að krefjast réttlætis.

Fylgist með, brátt verður boðað til hádegismótmæla nr. 2.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: