Aldrei má einkavæða slíka aðstöðu til sjálftöku. Þeir sjálfstæðismenn sem mæla með slíku eru hvorki að hugsa um hag kjósenda né fylgi flokks síns.
Ragnar Önundarson.

Umræðan: Ragnar Önundarson skrifaði þessa fínu grein:
Þegar svo háttar til að viðskiptavinur verður að kaupa þjónustu og m.a.s. á uppsettu verði, er um innviði að ræða og þá er „veita“ rétta rekstrarformið, af því að þessi staða er „einkasala“. Í henni felst aðstaða til sjálftöku af almenningi. Heiðars Guðjónsson keypti og á HS veitur. Hann er hagfræðingur og sá eini með þá menntun í Efnahagsnefnd Sjálfstæðisflokksins, sem kjörin er á Landsfundi. Annar og sá sem fékk flest atkvæði er Ásgeir Reykfjörð Gylfason, löglærður og með próf í verðbréfaviðskiptum, hægri hönd Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, framkvæmdastjóri Skeljar.
Hópákvörðun tryggir ekki rétta ákvörðun, sbr. orð Einars Þveræings.
Bankar í fákeppni og með yfirburði á allan hátt í samskiptum við sína viðskiptavini, eru innviðir. Greiðslumiðlun, ávöxtun og varsla spari- og veltufjár og lánastarfsemi verður að telja til innviða. Aldrei má einkavæða slíka aðstöðu til sjálftöku. Þeir sjálfstæðismenn sem mæla með slíku eru hvorki að hugsa um hag kjósenda né fylgi flokks síns.