- Advertisement -

Ofsóknarkenndin á sér ýmsar birtingamyndir

„Í þeim þingflokki er fólk sem faldi peninga í Panama, laug ítrekað að þjóðinni, fólk sem mætti ekki til vinnu í heilt ár og þáði samt laun fyrir og fólk sem afhjúpaði mannfyrirlitningu sína á Klausturbar fyrir stuttu síðan.“

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar:

Tímabært að Miðflokkurinn komi hreint fram og segi að þeir vilja hætta öllu samstarfi við hættulega útlendinga – hætta í EFTA og segja sig frá EES samningnum. Því það er nákvæmlega það sem þeirra málflutningur ber með sér, þegar nánar er að gáð.

Ætli það sé óhætt að vera áfram í norrænu samstarfi að þeirra mati? Gæti verið að hættuleg erlend öfl, mögulega sôsíaldemókratísk, gætu leitt þjóðina í glötun…

Sorglega fyndið, og eiginlega kaldhæðnislegt, að flokkur sem telur sig fylgja sterkum, kjarkmiklum foringja, sé svona skíthræddur við erlent samstarf. Að trúa því að menn bíði í röðum að hrifsa eitthvað af okkur. Að engu sé treystandi, síst af öllu samstarfsþjóðum okkar til áratuga.

Svo verður þetta sama fólk sármóðgað ef minnst er á „einangrunarhyggju“.

Ég velti líka fyrir mér hvort það kveikni ekki einhverjar viðvörunarbjöllur hjá fólki þegar það hlustar á málflutning þessa hóps. Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem talar með þessum hætti í orkupakkamálinu. Í þeim þingflokki er fólk sem faldi peninga í Panama, laug ítrekað að þjóðinni, fólk sem mætti ekki til vinnu í heilt ár og þáði samt laun fyrir og fólk sem afhjúpaði mannfyrirlitningu sína á Klausturbar fyrir stuttu síðan. Segir það ekki eitthvað um trúverðugleika þeirra málflutnings?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: