- Advertisement -

„Óleyfisbúnaður“ verði fjarlægður af Úlfarsfelli

Að færa vandann yfir á íbúa Reykjavíkur er ekki lausn. Það er ósvífni.

„Miðflokkurinn leggst alfarið gegn fyrirhuguðum framkvæmdum á einum vinsælasta útsýnisstað borgarinnar og vísar í fyrri bókanir vegna málsins. Eftirtekt vekur hversu hart Reykjavíkurborg hefur gengið fram í þessu máli þvert gegn vilja íbúa Úlfarsárdals, Grafarholts sem og íbúa borgarinnar almennt. Að reisa 50 metra hátt stálmastur hlaðið tækjabúnaði sem sendir frá sér slíka geislun að búnaðurinn var tekinn niður í Kópavogi vegna nálægðar við íbúahverfi er forkastanlegt.“

Svona bókaði Vigdís Hauksdóttir á fundi borgarráðs í dag.

„Að ætla sér að færa vandann yfir á íbúa Reykjavíkur er ekki lausn. Það er ósvífni. Fyrir liggur að hér er um að ræða hagsmuni einkafyrirtækis, ekki íbúa. Fyrir liggur að Úlfarsfell er ekki talinn besti kostur, þar trónir efst á lista Þverfellshorn í Esju og Bláfjöll, þar sem fyrir eru sendar frá öðru fyrirtæki. Fjöldi athugasemda í kjölfar auglýsingar téðs deiliskipulags er slíkur að elstu menn muna ekki annað eins. Það er tillaga Miðflokksins að þessari aðför ljúki hér og sú gríðarlega andstaða sem fram kemur í aðsendum athugasemdum í kjölfar auglýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir verði virt. Tilgangurinn með auglýsingum af þessu tagi er að fá fram vilja borgaranna. Jafnframt er þess krafist að núverandi óleyfisbúnaður verði fjarlægður tafarlaust. Því er fagnað sérstaklega að málinu er frestað.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: