- Advertisement -

Ólöf orðlaus eftir Bónusferð: „Hahaha þetta er flutt inn!“

Ólöf nokkur er ekki hrifin af því sem hún telur vera auglýsingabrellu Bónus í brauðdeildinni. Þar sá hún auglýsta litla kleinuhringi sem merktir voru sem nýbakaðir þegar Ólöf vill meina að þeir séu það alls ekki.

Ólöf vekur athygli á þessu í færslu í fjölmennu samfélagi matgæðinga á Facebook, Matartips! Þar birtir hún mynd af umbúðunum og segir:

„Nýbakað!! Hahaha þetta er flutt inn af Mylunni frosið frá útlöndum og alls ekki nýbakað heldur ný afþýtt,“ segir Ólöf.

Þetta mynd birti Ólöf af hinum nýbökuðu kleinuhringjum í Bónus.
Þú gætir haft áhuga á þessum

Margir meðlimir undrast þessa merkingu verslunarinnar á meðan ýmsir hrósa vörunni í Bónus.

Hvað segið þið, neytendur góðir? Finnst ykkur þessar merkingar í lagi?



Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: