- Advertisement -

Peningaöflin eru beggja vegna línunnar

„Alls konar fólk er hlynnt aðild, alveg eins og alls konar fólk er andsnúið aðild. Peningaöflin eru beggja vegna línunnar.“

Andrea Sigurðardóttir.

Andrea Sigurðardóttir stjórnmálablaðamaður Moggans skrifaði:

„Það er ekki annað hægt en að dást að spunameisturum Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Þeim hefur með ágætis árangri tekist að sannfæra ótrúlega margt alþýðlegt fólk um það að þessir flokkar séu einhvern veginn að gæta hagsmuna almennings gagnvart sérhagsmunaöflum auðvaldsins.

Á sama tíma horfir maður upp á „nýju Samfylkinguna“ og Viðreisn sem er ekkert eðlilega „posh“ lið, sem er svo sannarlega með „peningaöfl“ á bakvið sig. Reyndar er það svo, að eini flokkurinn í ríkisstjórninni sem er ekki svona yfirstéttarlegur og seint verður sagt að einhverjir auðmenn laðist að, hann er á móti aðild að ESB!

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta er í alvöru sprenghlægilegt.

Við vitum öll hvernig saga Fréttablaðsins endaði.

Sjáum hvernig Þórður Snær Júlíusson, einn helsti spunameistari Samfylkingarinnar, skrifaði um Viðreisn hér forðum daga:

„Við­reisn spratt upp úr óánægju með slit á aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið í febr­úar 2014. Þá klauf hópur alþjóða­sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna sig frá flokknum og fór að und­ir­búa nýtt stjórn­mála­afl. Á meðal þeirra voru Bene­dikt Jóhann­es­son, nú for­maður Við­reisn­ar. Aðrir sem til­heyrðu hópnum voru meðal ann­ars Þor­steinn Páls­son, Jór­unn Frí­manns­dóttir og Vil­hjálmur Egils­son.

Í þessum hópi voru líka fjár­sterkir áhrifa­menn úr íslensku atvinnu­lífi og víðar sem hafði fylgt Sjálf­stæð­is­flokknum að málum allt sitt líf. Til þess hóps töld­ust til að mynda Helgi Magn­ús­son, Sig­urður Arn­gríms­son og Þórður Magn­ús­son. Hluti hóps­ins hóf að hitt­ast reglu­lega til að ræða mögu­leik­ann á nýju fram­boði og annar hópur stofn­aði lok­aða grúppu á Face­book undir nafn­inu „Nýi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“.

Eitt af því sem rætt var um voru fjár­mál hins nýja fram­boðs. Kjarn­inn greindi frá því í apríl 2014, tveimur og hálfu ári áður en að Við­reisn bauð fram í fyrsta sinn, að stefnt yrði að því að fram­boðið yrði vel fjár­magn­að. Það átti ekki að vera vand­kvæðum bundið þar sem margir mjög fjár­sterkir aðilar höfðu þegar tengt sig við það. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var lögð áhersla á að ein­stak­lingar myndu greiða fyrir til­vist fram­boðs­ins úr eigin vasa. Einn við­mæl­anda Kjarn­ans sagði að þar myndi ekki verða beðið „um hund­rað þús­und kalla, heldur millj­ón­ir“.“

— Tilvitnun lýkur —

Við vitum öll hvernig saga Fréttablaðsins endaði.

Helgi Magnússon gaf lengi vel út fríblaðið Fréttablaðið. Á þeim árum sem enginn var að tala um mögulega aðild Íslands að ESB þá hélt Fréttablaðið þeirri umræðu uppi á síðum blaðsins í algjöru tómarúmi frá áhuga landsmanna. Við vitum öll hvernig saga Fréttablaðsins endaði, en upp úr öskunni reis DV, sem Helgi Magg nýtir nú í sinn ESB- og Viðreisnaráróður.

Nefndur Þórður Magnússon er fv. stjórnarformaður í Eyri Invest, sem var lengi vel stærsti eigandinn í Marel.

Nefndur Sigurður Arngrímsson er fjárfestir og var einn af stærri hluthöfum Bláa lónsins um árabil í gegnum eignarhaldsfélag sitt. Hann hefur verið viðskiptafélagi Helga Magg, meðal annars í fjölmiðlabraskinu.

Þetta fólk er að reyna að selja almenningi þann söguþráð að Viðreisn sé einhvers konar kyndilberi hagsmuna almennings gagnvart peningaöflunum, andstæðingarnir ganga erinda sérhagsmunaafla. Þetta er auðvitað ekkert nema bráðfyndið, enda var Viðreisn stofnuð utan um sérhagsmuni þessara manna sem vissu og vita að þeir sem fjármagnseigendur gætu grætt enn meira með gjaldmiðilinn evru í stað krónunnar.

Stundum ber söguþráður spunameistara flokkanna þess merki að menn hafi horft of mikið á House of Cards þættina og spuninn endar í kross. Fyrir korteri síðan var til að mynda sagan sú að peningaöflin væru að flýja með stórfyrirtækin sín úr krónunni í evruna, því krónan væri þessum ríku ekki boðleg (sem auðvitað stóðst enga skoðun). Nú er sagan allt í einu sú að krónan sé að vinna fyrir peningaöflin og að þau vilji þess vegna ríghalda í hana (sem stenst merkilegt nokk heldur ekki skoðun).

Mætti maður kannski kalla eftir ögn af gagnrýninni hugsun hjá fólki?

Ég get alveg borið virðingu fyrir því að fólk hafi aðra skoðun en ég og aðhyllist aðild að ESB, en það er afskaplega vandræðalegt að sjá hversu margir láta glepjast af endalausum frösum og söguþráðum spunameistaranna.

Mætti maður kannski kalla eftir ögn af gagnrýninni hugsun hjá fólki?

Söguþráðurinn sem er þess efnis að já-sinnar beri hagsmuni almennings fyrir brjósti og nei-sinnar gangi erinda peningaaflana stenst enga skoðun. Alls konar fólk er hlynnt aðild, alveg eins og alls konar fólk er andsnúið aðild. Peningaöflin eru beggja vegna línunnar.

Þegar fólk er komið þangað í örvæntingarfullri réttlætingu sinni fyrir söguþræðinum að það dylgjar um að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og ein helsta baráttukona fyrir hagsmunum verkafólks og þeirra jaðarsettu í samfélaginu, sé orðin handbendi auðvaldsins vegna þess að hún er mótfallinn aðild Íslands að ESB og fólk hikstar ekki einu sinni við eigin málflutning, þá er nú fokið í flest skjól.

Þegar allt kemur til alls, hverjir myndu enda græða mest á helstu óumdeildu kostum evrunnar, þ.e. lægri viðskiptakostnaði, auknu fjármagnsflæði til landsins o.s.frv.? Jú, jú, það eru fjármagnseigendur.

Myndin sem fylgir þessum hugleiðingum er úr Fréttablaðinu og er af fjárfestinum, auðmanninum, ESB-sinnanum og Viðreisnarsprautunni Helga Magg. Bara svona til að gera honum til geðs…“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: