- Advertisement -

Ráðuneyti Bjarna forðast að svara um launahækkanir þingmanna og ráðherra

„Um mitt ár var launahækkunum þingmanna og ráðherra frestað til áramóta. Ég hef verið að spyrja hversu mikið laun ráðherra og þingmanna hækki um áramótin. Fyrst svaraði ráðuneytið: Við erum ekki með það núna. Við svörum því eftir fundinn. Svo leið helgi, rétt áður en umræðan kláraðist, og ekkert svar. Ýtt var á eftir því þegar fulltrúar ráðuneytisins komu á fund okkar en þeir sögðust ekki heldur vera með svörin þá og ætluðu að svara strax eftir fundinn. Nú er kominn fimmtudagur og engin svör hafa komið enn. Af hverju svarar ráðuneytið ekki spurningum fjárlaganefndar?“

Þannig talaði Björn Leví Gunnarsson á Alþingi í lok síðustu viku. Bjarni Benediktsson svaraði:

„Það liggur fyrir skrifað í lög hvernig laun eiga að breytast fyrir þingmenn núna um áramótin. Viðmiðunartalan er þar útfærð og hún er ákveðin í lögum en við þurfum að sækja hana til Hagstofunnar. Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna ekki er hægt að framkalla hana. Ég kann ekki að segja frá því af hverju það hefur dregist að svara þessu. Ég hefði meira að segja haldið að vegna þess að þetta er hækkun sem átti að koma til framkvæmda í sumar þá sé viðmiðunartalan í raun og veru fyrir árið 2019 og þetta hafi legið fyrir meira eða minna allt þetta ár.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: