- Advertisement -

Ragnar opinberar eigin laun

Ragnar Þór Ingólfsson:

Ég hef alltaf talið að upplýsingar um laun og aðrar greiðslur til forystufólks í verkalýðshreyfingunni þurfi að liggja fyrir opinberlega til að tryggja gegnsæi og koma í veg fyrir mögulega hagsmunaárekstra.

Þann 19. október síðastliðinn var ég kjörinn formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna á þingi sambandsins sem haldið var á Akureyri.

Ég tók tímabundið við sem formaður LÍV í miðjum kjaraviðræðum síðasta vor eftir að Guðbrandur Einarsson, þáverandi formaður, ákvað að stíga til hliðar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég hugsaði mig vel um og ráðfærði við mína nánustu áður en ég tók ákvörðun um að gefa kost á mér í starfið sem er nokkuð umfangsmikið. Sérstaklega í ljósi þess að aðalstarf mitt sem formaður VR er mjög krefjandi og gefandi líka.

Fyrir formennsku í LÍV hafa verið greiddar 398.136 kr. á mánuði.

Mér hefur fundist þessi laun vera of há, sérstaklega í ljósi þess að formenn verslunarmannafélaga hafa gengt stöðunni undanfarin ár og um einhverja skörun starfa er að ræða.

Ég lagði til við stjórn að launin yrðu lækkuð og var samþykkt að leggja fyrir nýafstaðið þing Landssambandsins að lækka launin um 25% eða í 298.602 kr.

Laun mín eru því sem hér segir og taka kjarasamningsbundnum hækkunum VR félaga.

Laun fyrir formennsku í VR eru 1.183.611 kr. á mánuði. (hafa hækkað samkvæmt kjarasamningi um 99.753 kr. frá 2017)

Laun fyrir formennsku í LÍV eru 298.602 kr. á mánuði.

Samtals eru heildarlaunin mín 1.482.213 kr. á mánuði.

Ég fæ ekki aðrar greiðslur fyrir trúnaðarstörf á vegum verkalýðshreyfingarinnar né annars staðar frá.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: