- Advertisement -

Rík­is­rekstr­arsinn­ar hafa haft yf­ir­hönd­ina

Mér og fé­lög­um mín­um hef­ur orðið lítið ágengt í að skera upp kerfið.

Óli Björn Kárason skrifar langa grein um vonbrigði hans í starfi þingmanns. Síðasti þingvetur var þingmanninum sýnilega erfiður. Mogginn birti grein Óla Björns.

Hann telur upp nokkur mál, þar sem hann er ósáttur við hvernig þau þróuðust. Hann játar sig fullkomlega sigraðan þegar kemur að heilbrigðismálum. Þar hafi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra yfirhöndina.

„Á hverju ein­asta ári hafa fram­lög rík­is­sjóðs til heil­brigðis­kerf­is­ins verið auk­in en engu að síður nær það ekki að upp­fylla skyld­ur sín­ar við okk­ur öll sem erum sjúkra­tryggð. Verst er að mér hef­ur mistek­ist að koma því til leiðar að fjár­mun­ir séu nýtt­ir með eins hag­kvæm­um hætti og kost­ur er. Rík­is­rekstr­arsinn­ar hafa haft yf­ir­hönd­ina. Af­leiðing­in er verri þjón­usta og dýr­ari. Þannig má lengi telja.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Einka­rekn­ir fjöl­miðlar berj­ast flest­ir í bökk­um en á sama tíma blómstr­ar rík­is­rek­inn fjöl­miðill.

Nokkuð þungur dómur í garð ráðherrans. Sífellt meiri peningar en samt fjarri næg þjónusta. Eflaust verður þessu svarað.

Sjálfstæðismenn vilja ólmir veikja eftirlitsstofnanir sem mest þeir mega.

„Mér og fé­lög­um mín­um hef­ur orðið lítið ágengt í að skera upp kerfið. Eft­ir­lit­s­kerfið lif­ir góðu lífi og þjón­ar að því er virðist á stund­um frem­ur sjálfu sér en þeim sem því er ætlað – neyt­end­um og fyr­ir­tækj­um,“ skrifar Óli Björn svo dæsið nánast heyrist í gegnum skrifin.

Svo eitt klassískt mál vonbrigða:

„Einka­rekn­ir fjöl­miðlar berj­ast flest­ir í bökk­um en á sama tíma blómstr­ar rík­is­rek­inn fjöl­miðill. Og mér hef­ur lítið sem ekk­ert orðið ágengt í ára­langri bar­átt­unni gegn op­in­ber­um hluta­fé­lög­um sem eru nær ósnert­an­leg fyr­ir­bæri sem leggja til at­lögu við einkafram­takið þegar og ef það hent­ar.“

Grein Óla Björns er til muna lengri.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: