- Advertisement -

Rógburður og lygar á Alþingi

Foringjar málþófsþingmanna Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknarflokks.

Sjálfstæðisflokkur fabúleraði.

„Sakargiftir á hendur stjórnarandstöðunni eru þeim mun alvarlegri. Förum aðeins yfir sönnunargögnin, og byrjum á orðræðu minnihlutaþingmanna í garð strandveiðisjómanna. Greinilegt var að þessir þingmenn voru búnir að trekkja málþófsvélina í gang því þeir kepptust við að vera sammála bullinu í síðasta ræðumanni,“ skrifar Kjartan Páll Sveinsson formaður Strandveiðifélas Íslands og trillukarl, í grein sem birt er á Vísi, þar sem segist ákæra.

„Miðflokkurinn hélt því fram að strandveiðisjómenn borgi enga skatta og engin gjöld, og undir það tóku Sjálfstæðisflokkur og Framsókn. Framsókn reiknaðist til að potturinn þyrfti að rúmlega þrefaldast upp í 31.500 tonn, jafnvel þegar liðið var vel á sumar og þessi tala orðin stærðfræðilega ómöguleg, og undir þetta tóku Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur. Sjálfstæðisflokkur fabúleraði um að við öryrkjarnir í sjávarútvegi værum mikil ógn við byggðafestu, og undir þetta tóku Miðflokkur og Framsókn. Að lokum var búið að fara hring eftir hring með rógburð og lygar í yfir 20 klukkutíma án þess að minnihlutinn sýndi á sér nokkuð fararsnið,“ segir í grein Kjartans Páls.

…setja upp hvolpsaugu og ljúga…

„Þegar Strandveiðifélag Íslands mætti á þingpallana til að fylgjast með umræðum um þinglok steig hver minnihlutaþingmaðurinn af fætur öðrum í pontu og vorkenndi okkur greyjin smælingjunum fyrir að fá ekki okkar í gegn. Fólkið sem kallar vel launuð og eftirsóknarverð störf á landsbyggðinni efnahagslega sóun; sem snúa vistvænustu fiskveiðum sem völ er á í andhverfu sína og kallar þær ósjálfbærar; sem segja að eini hluti fiskveiðistjórnunarkerfisins þar sem sjómenn ráða sér sjálfir sé ekkert annað en hobbý fyrir tannlækna í Garðabæ og öryrkja hafsins – þetta fólk ætlast nú til þess að við trúum þeim þegar þau setja upp hvolpsaugu og ljúga því að okkur að það beri hag okkar fyrir brjósti.

Hjá minnihlutanum var brotaviljinn jafn einbeittur og hann var útreiknaður. Hann tapaði baráttunni um veiðigjöldin en náði að stöðva 48 dagana í sárabætur. Þess ber að geta að frumvarpið okkar var ekki eina mannfallið í heilögu stríði minnihlutans. Engin frumvörp lifðu þinglokasamninginn af nema einhverjar skylduæfingar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: