- Advertisement -

Safna liði til mótmælanna

Ragnar Þór Ingólfsson.

Það stefnir í fjölmenni á Austurvelli á laugardaginn.

„Loksins hvetur verkalýðsforystan félagsmenn sína til að mæta á samstöðufundi eins og þann sem boðaður er á Austurvelli laugardaginn 23 .nóvember kl. 14. Við munum mæta og halda á lofti ályktun ASÍ. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir með öllu því arðráðni sem afhjúpað var í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í síðustu viku og skipulagðri spillingu þar sem auðlindir fátækrar þjóðar eru misnotaðar.

Ég hvet alla til að mæta og sýna samstöðu gegn spillingu,“ skrifar Ragnar Þór Ingólfsson og vitnar til þessarar samþykktar:

Starfsaðferðir sem verður að uppræta

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir með öllu því arðráðni sem afhjúpað var í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í síðustu viku og skipulagðri spillingu þar sem auðlindir fátækrar þjóðar eru misnotaðar.

Starfsaðferðir Samherja í Namibíu beina sjónum að fjölmörgum þáttum í okkar samfélagi og hlutverki Íslands í samfélagi þjóðanna. Það er hrollvekjandi að sjá hvernig Samherji virðist hafa nýtt sér árangursríkt þróunarstarf íslenska ríkisins í Namibíu, siglt í kjölfar þess góða starfs og arðrænt fátækt samfélag. Íslensk verkalýðshreyfing stendur með vinnandi fólki í Namibíu og rétti þess til mannsæmandi kjara.

Það er ljóst að rannsakendur verða að fá skýrt umboð og fjármagn til að komast til botns í vinnubrögðum Samherja á erlendum vettvangi sem og innlendum eftir því sem tilefni er til. Þá vekur málið spurningar um samspil stjórnmála og stórfyrirtækja og nauðsyn þess að efla eftirlit og tryggja hlutleysi og möguleika eftirlitsstofnana til að sinna sínu nauðsynlega hlutverki.

Það er nauðsynlegt lýðræðinu og trausti að rannsókn málsins verði vönduð og þeir sem ábyrgð bera taki afleiðingum gjörða sinna.

Miðstjórn Alþýðusambandsins minnir á að ein undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar er sjávarútvegur þar sem starfa þúsundir félagsmanna aðildarfélaga ASÍ. Það skiptir máli hverjum er treyst fyrir sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og það á að vera skýlaus krafa að farið sé vel með hana og allt samfélagið njóti arðs af henni. Meðferð sameiginlegra auðlinda okkar á ekki að dýpka stéttaskiptingu eða misrétti á milli landsvæða.

Það er líka tilefni til að minna á að starfsfólk Samherja er ekki ábyrgt fyrir hegðun stjórnar og annarra stjórnenda fyrirtækisins frekar en almennt starfsfólk annarra fyrirtækja.

Alþýðusamband Íslands hvetur launafólk til að láta í sér heyra gegn spillingu og arðráni!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: