Séra Bjarni Karlsson skrifar grein um þátttöku Íslands í alþjóðlegum íþróttamótum og hvað beri að gera þegar landslið frá Íslandi þarf að mæta landsliði Ísrael. Hér fer sinni hluti greinar séra Bjarna sem hann skrifaði í gær:
„Þegar kvennalandslið í handbolta lék við Ísraela í aprílbyrjun var mikill samhljómur meðal okkar í þá veru að þátttakan væri siðferðilega vafasöm. Landsliðskonur fundu sína leið til að andæfa og sýna stuðning við Palestínu með því að halda fyrir merki ísraelsks innheimtufyrirtækis á treyjum sínum við hópmyndatöku.
Nú, að áliðnu sumri, þegar alheimur veit að Ísraelsk stjórnvöld meina það sem þau hafa sagt allan tímann, að þau hyggist ryðja íbúum Gaza burt af landakortinu, þá leikur íslenskt landslið við Ísraela undir ærandi þögn.
Hvað er tignarlegra en þriggja stiga karfa í hröðum leik? Á sama tíma er lagt upp úr því að tryggja velferð þátttakenda sem best með því að árekstrar eru ekki beinn þáttur í leiknum enda reglur um snertingar skýrari en í mörgum öðrum hópíþróttum.
Það að við skulum senda landslið í körfuknattleik til að leika við Ísraelsmenn rétt á meðan þeir keppast við að útrýma Gazabúum er skelfileg siðferðisleg uppgjöf.
Fyrirhugaður leikur er í raun félagspólitísk staðfesting á því að þjóðarmorð sé ásættanlegt eftir allt saman.
Í þessu máli og öðrum viðlíka sem upp munu koma þarf þjóðin að taka afstöðu í samvinnu við ÍSÍ. Afstöðuleysi okkar í hádeginu á morgun er gargandi þriggja stiga þögn.“