„Ríkisstjórnin sýnir algjört kæru- og andvaraleysi gagnvart yfirvofandi forsendubresti á kjarasamningum á almennum markaði í haust. Staðan í íslenskum efnahagsmálum er grafalvarleg.“
Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknar.
Stjórnmál: Lilja D. Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, segir ríkisstjórnina sekaum andvaraleysi í efnahagsmálum. Hún er til viðtals í Mogganum í dag:
„Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins fer hörðum orðum um efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið. Hún segir stöðuna í hagkerfinu vera „grafalvarlega“. Að hennar mati hefur ríkisstjórnin gert sex alvarleg hagstjórnarmistök sem grafi undan baráttunni við verðbólgu og stefni kjarasamningum í uppnám í haust.
„Ríkisstjórnin sýnir algjört kæru- og andvaraleysi gagnvart yfirvofandi forsendubresti á kjarasamningum á almennum markaði í haust. Staðan í íslenskum efnahagsmálum er grafalvarleg,“ segir Lilja, en hún telur að stjórnvöld hafi hvorki sýnt nægilegt aðhald né unnið sér inn trúverðugleika. Hún hafnar skýringum ríkisstjórnarinnar um að verðbólguna megi fyrst og fremst rekja til ytri áfalla. Hún segir meirihluta vandans vera heimatilbúinn.
Í viðtalinu rekur Lilja sex hagstjórnarmistök ríkisstjórnarinnar. Þá gagnrýnir hún jafnframt að ríkisstjórnin verji orku og einbeitingu í undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið á sama tíma og verðbólga, hægari hagvöxtur og aukið atvinnuleysi kalli á óskipta athygli stjórnvalda. Hún bendir á að samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands hafi halli ríkissjóðs verið að nálgast 24 milljarða strax á fyrsta ársfjórðungi. Hún segir ríkisstjórnina skulda þjóðinni skýringar á því hvernig hún hyggist ná yfirlýstum markmiðum sínum.“
Lengri útgáfa er í Mogga dagsins.