- Advertisement -

Sextugir og eldri með námslán

Samfélag Fólk, sextíu ára og eldri, glímir við afborganir námslána, og þá frekar konur en karlar. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar BHM. Þar kom sem sagt í ljós að um tuttugu prósent svarenda, sextíu ára og eldri, skulda námslán. Konur greiða lán sín hægar en karlar, enda almennt með lægri laun og endurgreiðslurnar tekjutengdar. Samt eru lánin ámóta há hjá báðum kynjum.

Námslánaskuldir eru orðnar hluti af kjaramálum aldraðra. Þessar skuldir falla ekki niður fyrr en við andlát lántakanda og þróunin hefur orðið sú að námsskuldir fylgja fólki lengra og lengra fram eftir aldri. BHM kannaði stöðu félagsmanna sína gagnvart Lánasjóði íslenskra námsmanna í síðustu kjarakönnun sinni.

Þetta kemur fram á vef BHM, bhm.is.

Könnunin leiddi í ljós að 86 prósenta svarenda höfðu tekið námslán, og þeir töldu endurgreiðslur valda umtalsverðu álagi á fjárhags sinn, eða sem svarar þriggja vikna tekjum á hverju hausti. Fleiri voru brautskráðir nú með háskólagráðu á Íslandi en nokkru sinni fyrr. En námslán verða mörgum þungur baggi.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: