- Advertisement -

Sigríður með létt skot á Kristrúnu

Sigríður Á. Andersen Miðflokki skaut léttu skoti á Kristrúnu forsætisráðherra á fundi þingsins. Hún var að fara spyrja Daða Má fjármálaráðherra. Áður en til þess kom sagði Sigríður:

„Mér þætti freistandi að beina þeirri spurningu til hæstvirts forsætisráðherra sem innheimtumanns ríkissjóðs hvort hann væri búinn að fá nöfnin á fjölskyldunum fjórum sem hæstvirtur forsætisráðherra hefur upplýst okkur um að greiði veiðigjaldið. En ég tel kannski að það væri að æra óstöðugan að spilla þessari notalegu stund sem við eigum hér með hæstv. ráðherra í júlí með umræðu um veiðigjöld á þessu stigi svo ég ætla að fá aðeins að ræða við hæstvirtan fjármálaráðherra um áfengi hins vegar og áfengissölu.“

Kannski svarar Kristrúnu spurningunni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: