„Ég kannski byrja bara á því að svara hér aðeins háttvirtum þingmanni Sigurjóni Þórðarsyni. Ég held hann þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af stjórnarandstöðunni og alls ekki missa svefn yfir því, minn kæri. Það er nóg annað í lífinu til að hafa áhyggjur af heldur en stjórnarandstaðan og áhugavert að hlusta á að háttvirtur þingmaður hafði áhyggjur af gagnrýni stjórnarandstöðunnar, sem ég veit að kemur honum mjög í opna skjöldu, að slíkt sé gert á þessu þingi. Eins og forsætisráðherra kom inn á áðan þá er þetta nú allt saman tekið upp þannig að það væri kannski hollt og gott fyrir háttvirtan þingmann að hlusta á sjálfan sig,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson þegar hann beindi orðum sínum að sveitunga sínum, Sigurjóni Þórðarsyni.
- Advertisement -