- Advertisement -

Skrópagemlingar í Miðflokki

Ég hafði nefnt við fulltrúa Miðflokksins að fundurinn væri langur og þéttur.

Fáir hafa fengið aðra eins yfirhalningu og Sigmundur Davíð eftir viðtali í fréttatíma Ríkissjónvarpsins í gær. Svo virðist sem ekki standi steinn yfir steini af því sem hann sagði. Fólk, sem þekkir vel til, hefur hrakið fullyrðingar hans um tilurð þriðja orkupakkans. Nú hefur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkisnefndar Alþingis, gert alvarlegar athugasemdir við orð Sigmundar Davíðs í viðtalinu.

Gunnar Bragi Sveinsson er fulltrúi Miðflokksins í utanríksinefnd og varamaður hans er sjálfur Sigmundur Davíð. Hvorugur mætti á nefndarfund. Sigmundur sagði þá ekki hafa vitað af fundinum.

Áslaug Arna notar Facebook til að skýra sitt mál.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það er afar merkilegt að formaður Miðflokksins ráðist nú að því að einhver leynd hafi hvílt yfir fundi utanríkismálanefndar í gær. Ég veit ekki hvernig hægt er að fá það út.

Fundur utanríkismálanefndar sem haldin var í gær fimmtudaginn 9. maí kl. ‪13:00 var boðaður með SMS-skilaboðum og tölvupósti sem send voru miðvikudaginn 8. maí kl. ‪16:13 og ‪16:18. Ekkert er óvanalegt við þá fundarboðun eða fyrirvara. Fundartafla nefndardaga var send öllum þingmönnum í tölvupósti mánudaginn 6. maí kl. ‪15:06 og þar kom skýrt fram að utanríkismálanefnd ætti fundartíma frá kl. ‪13:00 á fimmtudeginum 9. maí svo sá fundartími getur ekki hafa komið á óvart. Að auki má auðvitað nefna að tímasetning og dagskrá nefndarfunda birtist alltaf líka undir flipanum „fundir og heimsóknir“ á heimasíðu þingsins.

Þar að auki var farið yfir dagskrá fundarins í gær á morgunfundi nefndarinnar á miðvikudaginn sem og upptalningu á öllum gestum fundarins. Þar var Carl Baudenbacker engin undantekning enda var boðið uppá hvort nefndarmenn myndu óska eftir túlk daginn eftir. Ég hafði einnig nefnt það við fulltrúa Miðflokksins að fimmtudagsfundurinn væri einstaklega langur og þéttur. Enda gestakomur 12 talsins, Baudenbacker, SI, Viðskiptaráð Landsvirkjun, Orkan okkar, Landssamband bakarameistara og svo má áfram telja.

Ég mæli með að fara frekar í málefnaumræðu um orkupakkann í stað þess að reyna tortryggja hefðbundna fundi nefndarinnar sem Miðflokksmenn hreinlega gleymdu eða kusu að mæta ekki á.“

Þeir félagar, Gunnar Bragi og Sigmundur Davíð, hafa áður skrópað. Þekktast er þegar þeir, ásamt félögum sínum, fóru af þingfundi og skelltu sér á barinn, Klaustursbarinn.

Sjá fyrri frétt hér:


https://www.midjan.is/hrekja-fullyrdingar-sigmundar-davids/



Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: