„Það er ekki fyrr en núna, þegar Trump í súrrandi geðrofi hótar að eyða Íran af landakortinu og færa 90 milljónir íbúa yfir á steinöld.“
ESB: Sveinn Andri Sveinsson lögmaður skrifaði eftirfarandi pistil:
„Miðflokkurinn er sá flokkur sem hvað einarðast hefur bundið sitt trúss við Donald Trump. Hefur kveðið svo rammt að þessu að Miðflokkurinn er skilgreindur sem systurflokkur MAGA-hreyfingarinnar í Bandaríkjunum, en sú hreyfing vill breyta Bandaríkjunum í kristilegt fasistaríki, jafn undarlega og það hljómar. Hollusta og stuðningur Miðflokksins við Trump hefur ekki haggast þó að hann hafi hótað því að standa ekki við skuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart NATO og að ráðast með her inn í Grænland.
Það er ekki fyrr en núna, þegar Trump í súrrandi geðrofi hótar að eyða Íran af landakortinu og færa 90 milljónir íbúa yfir á steinöld, að einstaka stuðningsmenn Trump hérlendis, ýmist draga í land eða þegja. Hin íslenzka útgáfa af Stephen Miller, Snorri Másson, reynir núna að fjarlægja sjálfan sig frá Trump, en persónugervingur Miðflokksins, Sigmundur Davíð, þegir þunnu hljóði um þetta mikla átrúnaðargoð sitt.
En það sem skiptir máli fyrir íslenska kjósendur er sú áleitna spurning, hvernig hægt sé að kjósa til foryztu menn, sem sýna jafn mikinn dómgreindarbrest í alþjóðamálum og raun ber vitni.“
