- Advertisement -

Stórútgerðir yfirbjóða fisk á mörkuðum og flytja óunninn til útlanda

Ráðerrann: Ég hef heyrt af því að þetta séu líka erlendir kaupendur sem eru að kaupa fisk til útflutnings.

Oddný Harðardóttir og Kristján Þór Júlíusson. Oddný hefur áhyggjur af því hversu mikill fiskur er fluttur óunnninn úr landi. En Kristján ekki.

„Útflutningur á óunnum fiski fer vaxandi. Einnig færist það í vöxt að stórar útgerðir yfirbjóði á fiskmörkuðum fisk sem síðan er fluttur óunninn til vinnslu í öðrum löndum með þeim afleiðingum að fiskvinnslur hér á landi, sem treysta á að geta keypt hráefni á fiskmörkuðum, verða undir. Um allt land eru fiskvinnslur í þessari stöðu og eru í rekstrarvanda vegna hráefnisskorts og yfirboða þeirra stærri og stöndugri. Sumar þeirra verða að segja upp fólki og jafnvel hætta rekstri ef svo fer fram sem horfir. Efast má um að hér fari saman hagkvæmni stærðarinnar og þjóðarhagur,“ sagði Oddný Harðardóttir á Alþingi.

Hún spurði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra hvort hann hafi ekki áhyggjur af þróuninni og hvort hann hafi rætt  stöðuna við ráðherra byggðamála og ráðherra vinnumarkaðsmála um þróun byggða og fækkun starfa vegna þessa.

Fiksvinnslur segja upp fólki og jafnvel hætta rekstri.

Eins spurði Oddný hvort Kristján Þór hafi ekki rætt málið við Bjarna Benediktsson um hvort farið hafi verið hver virðisaukinn af unnum fiski til útflutnings er samanborið við virðisauka sem skapast við útflutning á óunnum fiski, áhrif á landsframleiðslu og tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga.

„Getur hæstvirtur ráðherra ekki tekið undir það með mér að hér sé á ferðinni óheillaþróun og að finna þurfi lausn ef fiskvinnslur sem treysta á fiskmarkaði eiga að lifa af?“

„Ég hef heyrt af því að þetta séu líka erlendir kaupendur sem eru að kaupa fisk til útflutnings á íslenskum mörkuðum þannig að viðfangsefnið að leggjast yfir er nokkuð flókið,“ sagði Kristján Þór sem sagðist ekki hafa rætt þetta mál við samráðherra sína.

„Við höfum rætt þetta, sumir hverjir, á hlaupum en ekki sest yfir verkefnið á formlegum fundi eða neinu því um líku. Í mínum huga er viðfangsefnið ekki orðið það stórt að það kalli á ítarlega greiningu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: