- Advertisement -

Sýnir ofurvald útgerðarinnar

„Þá eru vigtarmenn oft tengdir viðskiptavinum hafnanna fjölskyldu- eða vinaböndum.“

Oddný Harðardóttir skrifar:

Er að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar um Fiskistofu. Það er sláandi lesning og í raun áfellisdómur yfir Fiskistofu og Sjávarútvegsráðuneytinu um leið. Skýrslan sýnir vítaverða vanrækslu af hálfu stjórnvalda og ofurvald útgerðarinnar yfir auðlind þjóðarinnar og eftirliti með sjálfri sér. Í skýrslunni segir m.a. þetta: „[Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti] hefur gert margar atlögur að því að breyta regluverkinu í þeim tilgangi að eftirlit verði viðráðanlegt en ekki haft árangur sem erfiði. Fiskistofa hefur í flestum, ef ekki öllum tilvikum verið höfð með í ráðum og tillit tekið til eftirlitshlutverks stofnunarinnar í slíkri vinnu. En sú vinna sem hér er vísað til hefur lítinn árangur borið.“ Hver er það sem kemur í veg fyrir að ráðherra leggi frumvörpin fyrir þingið? Mér finnast völdin sem útgerðarmönnunum er leyft að hafa yfir meðferð á fiskveiðiauðlindinni og eftirliti lýsa engu öðru en spillingu. Þessu verður að breyta.
Annað dæmi úr skýrslunni: „Samkvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar eru auk þess mörg dæmi um að einungis einn hafnarstarfsmaður sinni vigtun hverju sinni og að hann sé þá oft bundinn við starfsstöð sína án þess að hafa tök á að gaumgæfa samsetningu og íshlutfall þess afla sem veginn er. Þá eru vigtarmenn oft tengdir viðskiptavinum hafnanna fjölskyldu- eða vinaböndum og erfitt getur reynst að tryggja óhæði þeirra í sýnd og reynd.“ Í sumum sveitarfélögum ráða útgerðarmenn því sem þeir vilja ráða, s.s. hvern sveitarstjórn ræður til starfa til hafnarinnar. 
Við eigum eftir að ræða skýrsluna í þinginu og fylgja því eftir að ráðherra vinni úr henni með frumvörpum, regluverki og fjármunum þannig að Fiskistofa geti sinnt eftirlitshlutverki sínu með skilvirkum hætti. Eða eins og segir í upphafi niðurstöðukaflans: „Sjávarútvegur er einn veigamesti og arðbærasti atvinnuvegur landsins og standa ríkir almannahagsmunir til þess að eftirlit með umgengni og nýtingu sjávarauðlindarinnar sé traust og í samræmi við lög.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: