- Advertisement -

„Fari öll þessi hræsni norður og niður“

Stjórnmál „Ég hef sjaldan heyrt aðra eins froðu flæða eins og í þessu viðtali við forstýru Vinnumálastofnunar. Hún réttlætir aðförina að fötluðum sem vinna á vernduðum vinnustað, Múlalundi í þessu tilviki, á kostnaði ríkissjóðs upp á 150 milljónir á ári. Hún segir að eðlilega geti ekki allir unnið á almennum vinnumarkaði en þeir sem geti það ekki, séu á örorkubótum engu að síður,“ þannig skrifar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.

„Hvert er inntak þessarar orðræðu? Jú fatlaðir sem þurfa á stuðningi að halda mega sitja einangraðir heima hjá sér af því að þeir eru hvort sem er á örorkubótum. Þeir líka kosta ríkissjóð of mikið. Mér verður hreinlega flökurt.

Það er verið að ausa peningunum okkar á báða bóga til að aðstoða fólk í öðrum löndum sem á bágt en okkar minnstu bræður og systur mega þola enn frekari jaðarsegningu í samfélaginu og félagslega einangrun og vanlíðan hvern einasta dag af því að það „kostar of mikið“ að veita þeim þá aðstoð og þann kærleika sem þau þurfa á að halda til að líða eins vel og kostur er miðað við fötlun sína. Ef satt skal segja þá get ég ekki með nokkru lifandi móti áttað mig á þessari ómanneskjulegu aðför gegn fötluðu fólki sem virkilega þarf á hjálp okkar að halda til að geta tekið þátt í samfélaginu.“

Inga Sæland er ekki hætt:

Bjarni ætlar að kaupa vopn fyrir 300 milljónir.

„Lilja Alfreðsdóttir vill hækka listamannabætur um 700 milljónir á ári, þannig munu þær bætur nálgast 2 milljrðana árlega. Fjölmiðlar fá styrki upp á hundruð milljóna á ári, Bjarni ætlar að kaupa vopn fyrir 300 milljónir til að styðja við stríðsreksturinn í Úkraínu. Hins vegar kosta fatlaðir sem þarfnast stuðnings „of mikið“.

Samningur sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks liggur ofaní skúffu Velferðarnefndar og á ekki að lögfesta hann þrátt fyrir að hin grimmilega aðför gegn fötluðum sé sögð byggja á samningnum og hreinlega túlkað fötluðum í hag. Það er eins og allir hljóta að sjá ósatt með öllu. Fari öll þessi hræsni norður og niður og lengra ef hún kemst,“ skrifar Inga Sæland.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: