- Advertisement -

Tala um það smáa en ekki um það stóra

…eins og að fella niður virðis­auka­skatt á reiðhjól­um eða auka grænkera­fæði í mötu­neyt­um skóla­barna.

Einar Sveinbjörnsson.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur er vísindamaður sem ég hlusta á og tak mark á. Hann skrifar ljómandi fína grein í Moggann í dag. Þar kemur margt fram sem gott er að taka eftir.

Mér hefur þótt ríkisstjórnin, og einkum Katrín Jakobsdóttir, tala og tala um umhverfismál án þess að hún tali um nokkuð sem skiptir raunverulega máli. Einar er vel pennafær maður og hann skrifaði um það sem ég hef hugsað svo ég kýs að gera þessi orð hans að mínum:

Þú gætir haft áhuga á þessum
Stóriðja á Íslandi.

„Hér á landi forðast menn t.d. eins og heit­an eld­inn að gera upp gaml­ar synd­ir stóriðjunn­ar í los­un kolt­víild­is eða hinn gríðar­mikla um­hver­fis­kostnað sem nýja „stóriðjan“ okk­ar, ferðaþjón­ust­an, er völd að. Þess í stað er sjón­um mark­visst beint að litl­um og sæt­um aðgerðum sem all­ir skilja, s.s. eins og að fella niður virðis­auka­skatt á reiðhjól­um eða auka grænkera­fæði í mötu­neyt­um skóla­barna.“

Þetta er sönn mynd hjá Einari. Hann beinir sjónum sínum helst að Norðmönnum og aukinn olíu- og gasvinnslu þeirra. Eðlilega vitnar hann til Gretu Thunberg og þeirri fínu ákvörðun hennar um að hafna umhverfisverðlaunum Norðurlandanna. Einar skrifar:

„Á sinn raunsæilega hátt varpaði hún eig­in­legri sprengju fram­an í for­sæt­is­ráðherra allra Norður­landaþjóðanna sem sátu al­vöru­gefn­ir á fremsta bekk þegar hún bætti við að þess væru eng­in merki að nauðsyn­leg­ar breyt­ing­ar væru fram und­an.“

Þau sem enn lesa Moggann ættu að lesa alla grein Einars Sveinbjörnssonar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: