- Advertisement -

Það besta sem við getum gert er að halda plani

En við getum haft stjórn á ríkisfjármálunum. Þess vegna lagði ríkisstjórnin fram fjármálaáætlun í gær, þar sem ríkissjóður er að skila afgangi í fyrsta sinn í hartnær 10 ár. Og skilar raunar afgangi öll ár fjármálaáætlunar.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Stjórnmál: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sendi eftirfarandi grein rétt í þessu:

Ég er á leiðinni heim frá Helsinki þar sem við funduðum með bandamönnum okkar í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (JEF). Þetta er góður vettvangur til að bera saman bækur og læra hvert af öðru. Við ræddum mikið um öryggi og varnir á Norðurslóðum. Það er dýrmætt fyrir okkur Íslendinga að eiga bandamenn sem sýna landfræðilegri legu okkar skilning. Skilja hvernig íslenska módelið virkar. Skilja hvað það er sem við gerum vel – og hvað það er sem hentar okkur síður. Um þetta snýst einmitt gott samstarf. Þegar fólk vinnur saman á grundvelli eigin styrkleika. Þannig styrkjum við öryggi og varnir Íslands. Og sköpum gott samfélag.

Við eigum gott samfélag á Íslandi. Við getum verið stolt af því. Okkur hefur tekist að reka sterkt velferðarkerfi og sterkan efnahag. Um leið höfum við í gegnum tíðina fundið takmarkað fyrir því þegar órói ríkir í alþjóðasamfélaginu. En heimurinn er að breytast. Tæknin hefur fært ógnirnar nær okkur – og aukinn óstöðugleiki einkennir alþjóðaviðskipti. Um þessar mundir sjáum við til að mynda hraðar breytingar á olíuverði vegna stríðsátaka í Íran.

Þú gætir haft áhuga á þessum

En við getum haft stjórn á ríkisfjármálunum.

Hér heima þurfum við því að hafa stjórn á því sem við getum haft stjórn á. Við getum ekki stýrt verðlagsþróun erlendis. En við getum haft stjórn á ríkisfjármálunum. Þess vegna lagði ríkisstjórnin fram fjármálaáætlun í gær, þar sem ríkissjóður er að skila afgangi í fyrsta sinn í hartnær 10 ár. Og skilar raunar afgangi öll ár fjármálaáætlunar.

Þetta er ekki það eina sem þarf til. Það þarf samstillt átak ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðar. Við þurfum að vinna saman að því að takmarka álagningu og halda aftur af launaskriði umfram kjarasamninga. Við þurfum að sammælast um að ná verðstöðugleika á Íslandi. Ríkið er að ráðast í ákveðnar aðgerðir til að stuðla að því: Hagræðingu með þátttöku almennings, 15% fækkun ríkisstofnana á kjörtímabilinu og tekjuaðgerðum sem hlífa heimilunum. Það besta sem við getum gert er að halda plani.

Ég byrja daginn á ríkisstjórnarfundi um leið og ég lendi. Þar ætlum við m.a. að afgreiða atvinnustefnu fyrir Ísland, sem verður kynnt eftir páska. Fleira spennandi er á döfinni sem ég hlakka til að segja frá síðar. Njótið helgarinnar


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: