Þegar Framsókn stökk yfir miðlínuna

„Ég skora á skólastjórn Háskólans á Bifröst og rektor skólans að fara yfir hegðun doktor Eiríks sem starfsmanns ríkisstyrkts háskóla. Ekki doktorsins vegna – heldur vegna orðstírs Háskólans á Bifröst.“
„Grein þín í Fréttatímanum liðna helgi er til marks um það – að grípa til þeirra bragða sem þú notaðir þar – ætti að vera ástæða til að vísa þér úr starfi í Háskólanum á Bifröst.“
Vigdís Hauksdóttir þá í þingliði Framsóknar og formaður fjárlaganefndar Alþingis.
„Grein þín í Fréttatímanum liðna helgi er til marks um það – að grípa til þeirra bragða sem þú notaðir þar – ætti að vera ástæða til að vísa þér úr starfi í Háskólanum á Bifröst.“
Byrjum á að bakka aftur til ársins 2014. Þá skrifaði Atli Þór Fanndal tímaritagrein um hversu mikið Framsóknarflokkurinn undur formennsku Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefði hallast að popúlisma: „…útlendingaandúð hefur fengið að grassera án þess að forystan hafi gripið inn í og flokkurinn hefur skrímslavætt hina ýmsu þjóðfélagshópa með ríkari hætti en áður.“
Aðeins síðar í greininni segir um stefnu Framsóknar:

„Óvinurinn er sakaður um að kosta samfélagið of mikið. Þannig eru innflytjendur í aðra röndina sakaðir um að taka vinnu af innfæddum fyrir margfalt lægri laun en innfæddir geta sætt sig við en á hinn bóginn er sami hópur svo sakaður um að misnota velferðarsamfélagið sem byggt var með blóði, svita og tárum forfeðra hinna innfæddu. Hægri popúlistar eru því skýrir í málflutningi sínum um að almannatryggingakerfið og öryggisnet samfélagsins sé skapað fyrir, og aðeins fyrir, innfædda sem þegar hafa sett inn í kerfið, til að mynda eldra fólk eða þá sem þeir telja harðduglega, en ekki að kerfið sé einmitt líka fyrir þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki fyllilega skapað sér þau lífsgæði sem samfélagið er sammála um að allir skuli njóta.“
Annað dæmi úr greininni:
„Togstreita er popúlískum hreyfingum lífsnauðsynleg. Séu fulltrúar þeirra ekki að brjóta á bak aftur bannhelgi pólitísks rétttrúnaðar þá eru þeir að verjast hatursfullum fjölmiðlum sem leitast við að misskilja og slíta úr samhengi.“
Vigdís Hauksdóttir var í þingliði Framsóknar og var meira að segja formaður fjárlaganefndar Alþingis. Hún hafði notað þá stöði gagnvart fréttastofu RÚV.
Tilvitnun hefst:

„Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins lét yfirlýsinguna eina og sér ekki nægja heldur krafðist þess, undir rós, að Eiríkur yrði ávíttur ef ekki rekinn fyrir skrifin. „Ég skora á skólastjórn Háskólans á Bifröst og rektor skólans að fara yfir hegðun doktor Eiríks sem starfsmanns ríkisstyrkts háskóla. Ekki doktorsins vegna – heldur vegna orðstírs Háskólans á Bifröst,“ skrifar Vigdís í aðsendri grein í Morgunblaðið. Þá ávarpar hún Eirík og skrifar; „Grein þín í Fréttatímanum liðna helgi er til marks um það – að grípa til þeirra bragða sem þú notaðir þar – ætti að vera ástæða til að vísa þér úr starfi í Háskólanum á Bifröst. Þar ferðu yfir öfgahreyfingar í Evrópu og á Norðurlöndunum og lýsir hatri þeirra á innflytjendum. Þú ferð einnig yfir hin hræðilegu Úteyjarmorð og berð þetta svo allt saman við Framsóknarflokkinn og telur hann hafa breyst í þessa átt hin allra síðustu ár. Ég fyllist viðbjóði, doktor Eiríkur, á samlíkingunni og afþakka slíkar samlíkingar fyrir mína hönd og framsóknarmanna allra.“
Arli Þór Fanndal blaðamaður:

Atli Þór Fanndal hefur um árabil skrifað eftirtektarverðar fréttaskýringar. Þessi hér er með þeim beittari. Að ofan er tengill á greinina.
Hann er einnig hér. Grein Atla Þórs.