- Advertisement -

Þingmaður nauðlendir

Þórhildur Sunna.

Þórhildur Sunna var að skrifa eftirfarandi á Facebook:

Ég var að lenda mjúkri nauðlendingu à Keflavíkurflugvelli eftir að slökkva þurfti á hægri hreyfli á flugvél Icelandair til Zürich. Ég er þakklát flugmanninum fyrir að komið okkur á jörðina heil á höldnu og áhöfninni fyrir að hafa haldið ró sinni þrátt fyrir augljósa hættu. Ég skil hins vegar alls ekki hvernig Icelandair getur látið það eiga sig að taka á móti okkur við endurkomu í flugstöðina með upplýsingar um næstu skref. Ég var að heyra það núna, klukkutíma efir nauðlendingu að við fáum nýja vél kl 10. Það er í sjálfu sér fínt en mér finnst þetta vond þjónusta og gestrisni við fólk sem upplifði eflaust sama ótta og ég við að frétta að við værum að fara að nauðlenda á einum hreyfli. En ég er semsagt góð bara.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: