- Advertisement -

Þórdís Kolbrún svarar ekki

Helga Vala Helgadóttir: „Þessum spurningum um kostnað íslenska ríkisins af Landsréttarklúðri Sjálfstæðisflokksins er enn ósvarað af dómsmálaráðherra sem þó sagði þann 20. maí sl. að svar yrði sent Alþingi síðar í vikunni.

Hvað á æðsta stofnun landsins að taka til bragðs þegar ráðherra neitar að svara einföldum spurningum? (Spurningin var borin fram 25. mars eða fyrir 15 vikum. Skv. þingsköpum skal ráðherra svara innan tveggja vikna ellegar senda skrifleg rök til Alþingis fyrir drætti á svari. Ekkert slíkt hefur borist).“

Helga Vala skrifaði þetta 7. Júní:

Svar óskast. Fyrir 10 vikum síðan óskaði ég svara við fyrirspurn minni um kostnað ríkisins vegna ólögmætrar skipunar fv. dómsmálaráðherra í embætti landsréttardómara. Var óskað eftir upplýsingum um allan kostnað, bætur til annarra umsækjenda, kostnað vegna vinnu við málið, kostnað vegna fjölmargra aðkeyptra sérfærðinga og fleira. 
Þann 20. maí sl. (fyrir tveimur vikum) svaraði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, dómsmálaráðherra því til að svarið væri tilbúið og yrði sent frá ráðuneytinu í lok þeirrar viku. Eitthvað virðist sendiboðinn lengi á leiðinni því ekkert svar hefur borist.

Af hverju grunar mig að ríkisstjórnin vilji ekki að við fáum svarið fyrir þinglok?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: