- Advertisement -

Undirbúa sölu Leifsstöðvar

Sala flugstöðvarinnar hefur m.a. verið á stefnuskrá Sjálfstæðisflokks í talsverðan tíma.

„Það hafa átt sér stað þreifingar við ríkið undanfarin misseri þar sem þetta mál hefur verið til skoðunar,“ segir Ómar Örn Tryggvason, framkvæmdastjóri Innviða fjárfestinga slhf.“ Þetta úr frétt í viðskiptakálfi Moggans í morgun.

Þar segir og: „Vísar hann í máli sínu til hugsanlegrar þátttöku lífeyrissjóðanna í fjármögnun og eignarhaldi á Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem er nú að fullu í eigu ríkisins.“

Í fréttinni er bent á rót málsins: „Málið hefur í ófá skipti komið til umræðu undanfarin ár, en sala flugstöðvarinnar hefur m.a. verið á stefnuskrá Sjálfstæðisflokks í talsverðan tíma.“

„Ég held að sala væri skynsamlegust fyrir alla aðila og tel mögulegt að hún geti orðið að veruleika. Frá því að ákvörðun er tekin geta hins vegar liðið nokkrir mánuðir þar til flugstöðin er að hluta komin í eigu annarra aðila,“ segir Ómar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: