- Advertisement -

Var Davíð ekki boðið í afmælið?

Það er vissu­lega megn óánægja í flokkn­um og þá ekki síst meðal kjós­enda hans.

Það er sem forystufólk Sjálfstæðisflokksins hafi annað hvort gleymt eða ekki hirt um að bjóða Davíð Oddssyni í níutíu ára afmæli flokksins. Hið minnsta var honum ekki boðið sem heiðursgesti. Davíð er ekki skemmt yfir þessu og kemur með enn eina ádrepuna á núverandi forystu.

„Það gerðist ekki mikið á 90 ára af­mæli Sjálf­stæðis­flokks­ins og reynd­ar var engu lík­ara en að af­mælið brysti óvænt á og það þrátt fyr­ir óvænta heiðurs­gesti, formann VG, formann Fram­sókn­ar­flokks­ins, þá sömu sem vildu draga fyrr­ver­andi formann flokks­ins, Geir H. Haarde, fyr­ir Lands­dóm í þeim yf­ir­lýsta til­gangi að koma hon­um á bak við lás og slá.“

Á einum tíma sagði Bjarni Benediktsson, við þann sem þetta ritar, að myndi aldrei geta fyrirgefið því fólk sem samþykkti ákærurnar á Geir H. Haarde. Og heldur ekki því fólki sem samþykkti lagabreytingar um Seðlabankann með þeim afleiðingum að Davíð missti starfið. Nú er öldin önnur og það er meira en vík milli Davíðs og Bjarna.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Forystusveit flokksins býr við óeiningu innan flokksins og ekkert lát virðist vera þar á.

Davíð segir Katrín Jakobsdóttur, heiðursgest í afmælinu, vilja leyfa að „farga“ ófæddum börnum.

Lesum meira af skrifum Davíðs um sinn gamla flokk og afmælið:

„Fyrsti heiðurs­gest­ur flokks­ins var ný­bú­inn að lýsa því yfir að hún vildi að sett yrðu lög sem heim­iluðu kon­um að ákveða að farga ófæddu barni sínu allt þar til komið væri að fæðingu þess eft­ir 9 mánaða meðgöngu.

Það er eng­inn vafi á því að væru al­menn­ir sjálf­stæðis­menn spurðir um þessa draum­sýn for­manns VG þætti yf­ir­gnæf­andi meiri­hluta þeirra þetta fjar­stæðukennd afstaða ef ekki bein­lín­is óhuggu­leg.

Þá mun vara­formaður Sam­fylk­ing­ar einnig hafa verið í hópi út­val­inna heiðurs­gesta. Sam­fylk­ing­ar­for­yst­an kall­ar barn sem kona geng­ur með „frumuklasa“ allt að fæðingu eins og fram hef­ur komið.“

Þessar staðreyndir meiða greinilega formann fyrrverandi. Hann heldur áfram:

„Varla er hægt að kenna vali á heiðurs­gest­um í þessu af­mæli um það hversu illa sam­kund­an var sótt, þótt vor­sól­in blíða léti sitt ekki eft­ir liggja og ein­hverj­ir hoppukastalar til taks.

En af hverju þurfti að læðast með veggj­um með þetta af­mæli? Það er vissu­lega megn óánægja í flokkn­um og þá ekki síst meðal kjós­enda hans og hugs­an­legra kjós­enda með óskilj­an­lega fram­göngu flokks­ins í orkupakka­mál­inu, þar sem hik­laust er byggt á blekk­ing­um, sem raun­ar eru fjarri því að vera lofs­verðar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: