- Advertisement -

Var ekki fullreynt

Umræðan Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata:

„Þingflokkur Pírata telur ekki fullreynt að ná jákvæðri niðurstöðu í stjórnarmyndunarviðræðum. Samtalið hefur gengið vel og telja Píratar alla hafa komið að borðinu með það að markmiði að ganga í þau stóru mál sem bíða okkar. Píratar skilja áhyggjur af naumum meirihluta og telja hinu augljósu leið að bjóða fleirum að borðinu.

Þolinmæði almennings fyrir stjórnmálum spillingar, eiginhagsmuna og sjálfhverfu er á þrotum. Það er von Pírata að aðrir stjórnmálaleiðtogar hafi heyrt þau skilaboð og gangi ekki til stjórnarviðræðna þar sem slík stjórnmál fá áfram að viðgangast. Þingflokkur Pírata hefur í þessum viðræðum haft það að markmiði að skila stjórnarsáttmála sem er almenningi til heilla. Þar liggur hugur okkar enn.

Þær samningaviðræður sem fram fóru voru ánægjulegar og jákvæðar miðað við áherslur Pírata í nýafstöðnum kosningum. Mál sem ágreiningur hefur verið um hafa verið rædd í sátt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Píratar eru flokkur málefnalegra vinnubragða og kerfisumbóta. Við erum hreyfing sem hefur það að markmiði að stunda ábyrg stjórnmál til ávinnings fyrir almenning og til raunverulegra umbóta. Niðurstaða kosninga skilaði engum augljósum meirihluta. Píratar lýsa sig tilbúna til að leita að breiðari samstöðu og halda samtalinu áfram. Píratar skilja að verkefnið er stærra en við sjálf.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: