- Advertisement -

Var Sigmundur Davíð með óráði?

Og þáttastjórnandinn, hann var ráðalaus, skrifar Jóhann. Bergsteinn Sigurðsson. Skjáskot úr Silfrinu.

Jóhann Þorvarðarson skrifaði:

Ég horfði á Silfrið í gærkvöldi og sat eftir furðu lostinn yfir framgöngu Sigmundar Davíðs, formanns Miðflokksins. Það sem hefði átt að vera málefnaleg umræða breyttist í upphrópanir, framíköll og ruddaskap gagnvart kvenviðmælendum í þættinum. Tal hans minnti helst á óráð. Erfitt var að greina skýra hugsun eða samfelld rök í því sem fram kom.

Af svipbrigðum annarra þátttakenda virtist mér ljóst að þeir væru orðnir vandræðalega meðvitaðir um stöðuna. Þær reyndu hvað eftir annað að beina samtalinu aftur inn á málefnalegar brautir, oft án mikils árangurs. Og þáttastjórnandinn, hann var ráðalaus.

Framganga Sigmundar skildi eftir mynd af stjórnmálamanni sem hafði misst tökin á sjálfum sér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: