- Advertisement -

Vigdís og Kristrún í Ráðherrabústaðnum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:

Þann 29. júní 1980, fyrir sléttum 46 árum, var frú Vigdís Finnbogadóttir kjörin forseti Íslands.

Það var mikill heiður að fá Vigdísi í kaffi í Ráðherrabústaðnum á þessum tímamótum í dag. Við fórum um víðan völl yfir kaffibollanum, rifjuðum upp skemmtilegar sögur úr forsetatíð hennar og ræddum málefni líðandi stundar.

Þá var sérstaklega gaman að geta sýnt Vigdísi nýuppgerðan Ráðherrabústaðinn, þar sem hún tók sjálf iðulega á móti merkum gestum þegar hún gegndi embætti forseta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kjör Vigdísar á þessum degi árið 1980 var sögulegt. Ekki bara fyrir Ísland heldur heimsbyggðina alla. Fram var kominn sannur brautryðjandi og firnasterkur leiðtogi, sem enn þann dag í dag er sú fyrirmynd sem íslenskar konur líta einna helst upp til. Slík arfleið er sannarlega ekki sjálfgefin.

Takk fyrir að kíkja við á þessum merkisdegi, kæra Vigdís. Þú ert alltaf velkomin í kaffi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: