- Advertisement -

Vigdís segir valdníðslu á Laugavegi

„Meirihlutinn kýs ófrið þegar friður er í boði.“

„Enn heldur meirihlutinn áfram með hreina valdníðslu að loka Laugaveginum, Bankastræti og götum í Kvosinni fyrir allri umferð þvert á vilja rekstraraðila sem þar starfa,“ bókaði Vigdís Hauksdóttir á borgarráðsfundinum í gær.

Í borgarráði kom fram að útfærsla umhverfis- og skipulagssviðs feli; „…í sér umfangsmikið samráð með margvíslegum hætti. Hvort sem er á vefnum, hér á jarðhæð Ráðhússins eða á fundum með hagsmunaaðilum.“

Vigdís gefur ekki mikið fyrir þetta: „Meirihlutinn kýs ófrið þegar friður er í boði. Nú er boðað til þess sem meirihlutinn kallar „samráð“. Slíkt hefur sjaldan virkað hjá borginni því búið er að ákveða niðurstöðuna fyrir fram. Stríð borgarinnar við íbúa og þjónustuaðila sem á þessu svæði starfa heldur því áfram.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hún benti á að ef minnst tuttugu prósent af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óski almennrar atkvæðagreiðslu verði að verða við þeirri kröfu. „Það er löngu tímabært að Reykvíkingar segi álit sitt á þeirri aðför sem hefur staðið yfir um langa hríð að þessu svæði.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: