- Advertisement -

Vill verkbann á Eflingarfólkið

„Því miður er væntanlega það eina í stöðunni að boða verkbann á móti frá fyrsta degi verkfalls.“

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Grayline og fyrrverandi varaformaður Samtaka ferðaþjónustunnar, vill verkbann á Eflingarfólk.

„Það er vanþekking á eðli og ábyrgðum ferðaþjónustuaðila hvort sem um er að ræða ferðaskrifstofu, hótel eða hópferðabíl að halda það að hægt sé að bjóða ferðamönnum upp á skerta þjónustu eftir dögum í þeirra ferð. Verði skerðing einn dag í ferðinni er viðbúið og lögleg að krefjast skaðabóta eða endurgreiðslu á allri ferðinni þó einhver þjónusta hafi verið veitt,“ skrifar Þórir og svo kemur þetta:
„Því miður er væntanlega það eina í stöðunni að boða verkbann á móti frá fyrsta degi verkfalls. Við gerum þá bara eins og Færeyingar lokum og sinnum viðhaldi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: