- Advertisement -

8.500 ný störf urðu til á einu ári

- þar af er tæpur helmingur nýrra starfa í ferðaþjónustu.

Ferðaþjónustan krefst sífellt fleiri starfa. Á síðasta ári fjölgaði störfum þar um 3.800. Alls urðu til 8.500 ný störf á Íslandi í fyrra, árið 2016. Ferðaþjónustan á 44 prósent af fjölguninni.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Launþegum fjölgaði um fimm prósent á síðasta ári, sem er mun meiri fjölgun en verið hefur síðustu ár. „Fjölgun starfa fylgist að við hagvöxt en hann var mikill á síðasta ári eða 7,2%. Líkt og verið hefur síðustu ár skýrist fjölgun starfa í atvinnulífinu að stórum hluta af aukinni atvinnusköpun í ferðaþjónustu,“ segir í Hagsjánni.

„Meðalfjöldi launþega hér á landi var rúm 180 þúsund á síðasta ári og fjölgaði þeim um 8.500, eða um 5%, frá fyrra ári. Þetta er umtalsvert meiri fjölgun starfa hlutfallslega séð en verið hefur síðustu ár. Þannig fjölgaði launþegum á bilinu 1,1-3% á árunum 2011-2015 og kom sú fjölgun í kjölfar fækkunar árin 2009 og 2010 en árið 2009 fækkaði launþegum um 8,8%. Þessi mikla fjölgun á síðasta ári helst að talsverðu leyti í hendur við hagþróunina en umtalsvert meiri hagvöxtur mældist á síðasta ári en árin á undan. Þannig nam hagvöxturinn 7,2% á síðasta ári borið saman við meðalhagvöxt upp á 2,7% á árunum 2011-2015,“ segir einnig í Hagsjá Landsbankans.

Sem fyrr segir langtum mest um ferðaþjónustuna. 44 prósent af fjölgun launþega á síðasta ári skýrist af fjölgun starfa í greinum sem snúa að íslenskri ferðaþjónustu. „Alls fjölgaði störfum í ferðaþjónustugreinum um tæplega 3.800 og var fjölgunin 18,5% milli ára. Árið 2011 hófst uppsveiflan í ferðaþjónustu og hefur störfum í greininni fjölgað um tæplega 12 þúsund frá árinu 2010 sem er tæplega tvöföldun starfa í greininni. Á sama tíma hefur heildarfjöldi starfa í atvinnulífinu vaxið um 26 þúsund og skýrir fjölgun starfa í ferðaþjónustu því 46% af heildarfjölgun starfa í atvinnulífinu í heild á tímabilinu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: