- Advertisement -

Ekkert bólar enn á brottrekstri forstjóra Sorpu

Sumir forstjóranna hafa setið í skjóli Sjálfstæðisflokksins.

Haukur Arnþórsson skrifar:

Raunveruleg ábyrgð embættismanna á eigin verkum – hefur lengi verið eitt af baráttumálum stjórnsýslufræðinga (og raunar alls almennings). Þeir eiga að vera leiðandi fagmenn og standa og falla með verkum sínum. Æðstu stjórnendur ríkisins og ríkisfyrirtækja sátu hins vegar í „gamla Íslandi“ í skjóli einhvers af fjórflokknum og voru ósnertanlegir. En allt er hverfult.

Með hækkandi launum ríkisforstjóra (þeir eru nú með 1,5-3 millj./mán.) hafa þeir í auknum mæli orðið að bera ábyrgð á gengi stofnana/fyrirtækja sinna, bæði mistökum og ef þeir ráða ekki við starfið. Það er sérstaklega athyglisvert að tveir þeirra létu af störfum af því að þeir hunsuðu eðlilegt eftirlits- og öryggishlutverk stofnana sinna gagnvart einkageiranum (WOW). Þetta höfum við þó lært af fjármálahruninu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú hefur heldur betur hitnað undir ríkislögreglustjóra og áður eru farnir forstjórar Ísavía, Íslandspósts, Sjúkratrygginga og Samgöngustofu. Í sumum tilfellum hafa stjórnarformenn eða stjórnarmenn farið einnig.

Sumir þessara forstjóra hafa setið í skjóli Sjálfstæðisflokksins og er svo um ríkislögreglustjóra, sem var ráðinn í starfið án auglýsingar ef ég man rétt (alla vega með umdeildum hætti). Athyglin beinist að Bjarna Benediktssyni sem hefur sterka stöðu gagnvart forstjórunum ef um lélega fjármálastjórn er að ræða – og þessi breyting gæti verið að hans frumkvæði, þótt flestir þeirra heyri undir önnur ráðuneyti. Þannig hafa aðrir ráðherrar spilað með.


…að um ákvörðun allrar ríkisstjórnarinnar er að ræða.

Þetta er svo áberandi breyting í stjórnsýslu ríkisins að lítill vafi er á því að um ákvörðun allrar ríkisstjórnarinnar er að ræða. Með þessu hefur orðið gríðarleg breyting á afstöðu flokkanna til stjórnsýslunnar, ekki síst hvort hún sé undir þeirra stjórn og jafnframt verndarvæng eða ekki. Nú eru forstjórar á eigin vegum og gerð er krafa til þeirra um fulla fagmennsku og árangur.

Ríkið fer á undan – sveitarfélögin koma á eftir eins og venjulega – en ekkert bólar enn á brottrekstri forstjóra Sorpu, sem vissulega er ljóður á starfi meirihlutans í Reykjavík, enn sem komið er.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: