- Advertisement -

Mannfyrirlitning í borgarstjórn

Reykjavíkurborg:

Sigurjón Magnús Egilsson skrifaði:

Nýr meirihluti í Reykjavík fer fram með brestum og braki. Uppsagnir starfsmanna er framkvæmdar með fantaskap. Hvers vegna er erfitt að koma auga á. Það er illa farið að fólki sem missir vinnuna. Því er vísað úr húsi samstundis. Ekki hefur komið til greina að fólk fái að kveðja vinnufélaga sína eða sækja persónulegar eigur sínar. Fólki er bara vísað út.

Svo er það annað. Búið er að taka hvoru tveggja vatn og rafmagn af því fólki sem kýs að búa í hjólhýsum. Það á að pína fólkið til uppgjafar. Helstu fingraförin á þessum fantaskap eru Einars Þorsteinssonar Framsóknarflokki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Flokkur fólksins hefur ályktað:

Látið að fantaskapnum 
og mannfyrirlitningunni.

„Fólk á að geta búið í föstu húsnæði í hjólhýsi eða húsbíl og fengið aðgang að rafmagni, vatni og öruggri aðstöðu. Hjólhýsabúar fluttu úr Laugardal yfir á Sævarhöfða og fengu aðstöðu sem var hugsuð sem tímabundin. Nú eru liðin rúmlega 3 ár. Núna, þegar stutt er í jólin, hefur verið lokað fyrir rafmagnið. Enginn ætti að þurfa að búa við svona óvissu.

Tillaga er komin fram frá Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur og fimm öðrum þingmönnum Flokks fólksins um að ríkisstjórnin undirbúi frumvarp til þess að sveitarfélög geti skipulagt svæði fyrir hjólhýsi og húsbíla sem lausn til frambúðar. Sveitarfélögin sjálf ákveða staðsetningu svæðanna, fólkið sem þar býr á að vita hvaða rétt það hefur og hvaða þjónustu það getur treyst á.“

Einmitt.

Fyrir hverjum er þetta fólk? Því má það ekki búa eins og það vill. Fólk sem borgar fyrir rafmagn og borgar fyrir vatn. Ræður ömurlegur og vondur smekkur eins manns öllu um nánustu framtíð fólksins.

Meirihluti borgarstjórnar verður að bakka með þessa fanta ákvörðun sína. Sjálft hefur fólkið óskað eftir að fara á nærliggjandi lóð, þar sem móttökustöð Sorpu var áður. Ef svo yrði myndi ekkert sjást til hjólhýsanna frá Sævarhöfða og þar eru tengingar fyrir rafmagni og öllu því sem þarf.

Látið að fantaskapnum og mannfyrirlitningunni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: