Neytendur:
Vilhjálmur Birgisson skrifaði eftirfarandi grein:
„Á fundinum spurði ég SA hvort samtökin vildu að við leituðum sameiginlega til óháðs aðila til að rannsaka hvernig gengisbreytingar skila sér í verði til neytenda. Þetta er risastórt hagsmunamál fyrir almenning. Það er ótækt ef fyrirtæki velta kostnaðinum af veikingu krónunnar hratt yfir á heimilin en halda eftir ávinningnum þegar hún styrkist.
Frá áramótum til loka október fór evran úr 147,20 krónum í 136,00 krónur og dollarinn úr 125,20 krónum í 121,73 krónur. Á sama tímabili hækkaði verð á innfluttum vörum til íslenskra neytenda um 1,0% samkvæmt Hagstofunni. Hvar sjá heimilin ávinninginn af sterkari krónu í verði þess sem þau kaupa?

Árslokagengi 2025 · Gengi í lok október · Vöruverð eftir uppruna, Hagstofa Íslands
Seðlabankinn skoðaði veikingu og styrkingu hvora í sínu lagi. Í greiningu sem bankinn birti í apríl var verð á mat- og drykkjarvörum skoðað frá janúar 2000 til ágúst 2025. Höfundarnir miðuðu við gengi krónunnar gagnvart evru og tóku einnig tillit til launa og heimsmarkaðsverðs á olíu.
1% veiking krónunnar tengdist 0,9% hækkun á verði mat- og drykkjarvara eftir um tíu mánuði.
1% styrking krónunnar tengdist aðeins 0,2% lækkun eftir þrjátíu mánuði. Lækkunar varð vart fyrr, en áhrifin voru minni og óstöðugri.
Seðlabankinn skoðaði líka dagleg verðgögn ASÍ. Þar fóru hækkanir að sjást um fimm dögum eftir gengisveikingu. Eftir styrkingu mældist hins vegar engin tölfræðilega marktæk verðbreyting fyrstu þrjátíu dagana. Greining Seðlabanka Íslands frá 1. apríl 2026
Það er grafalvarlegt ef fyrirtæki láta gengistapið skella á neytendum en hirða gengisávinninginn sjálf. Seðlabankinn sýnir skýran mun á verðviðbrögðum mat- og drykkjarvara. Með óháðri rannsókn vil ég fá fram hvað skýrir þann mun og kanna hvort sama mynstur sé að finna víðar í verslun og þjónustu.
Við þurfum að fá að sjá hvað gerist með innkaupsverð, söluverð og framlegð þegar krónan hreyfist í báðar áttir. Þegar sterkari króna lækkar innkaupskostnaðinn eiga neytendur rétt á að vita hversu mikið af lækkuninni skilar sér til þeirra, á hvaða vörum og hvenær.
Fyrirsögnin er Miðjunnar.