- Advertisement -

Nú hækkar verð flugmiða sjálfkrafa

Þröstur Ólafsson skrifaði:

„Okkur er kennt að efnahagslífi þjóða farnist best ef svokölluð markaðsöfl fái óhindruð að mynda verðlag á vörumörkuðum. Þessi öfl segi til um framboð og eftirspurn. Ef enginn vill kaupa vöruna er hún verðlaus þótt mikil vinna og hugvit hafi verið lagt til hennar.

En allt breytist. Þið sem ferðist, hafið orðið vör við að verð á flugi er í lausu lofti. Þið lesið ykkur til um verð til ákveðins áfangastaðar, farið inn á sölusíðu viðkomandi flugfélags og sjáið þar jafnvel mörg mismunandi verð sama félags innan sama dagsins.

Í desemder voru fjögur mismunandi verð innan sama dags. Ætlaði fyrir nokkru að kaupa mér farmiða til útlanda. Þá birtist á skjá flugfélagsins verð sýnu hærra en uppgefið verð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hrökklaðist frá en ákvað engu að síður að kaupa miða. Aftur hafði miðinn hækkað innan þessara fáu mínútna sem liðið voru. Félagið hefur hnýtt verð flugfargjalda við forritaða algoriðma. Nú hækkar verð miðanna sjálfkrafa.

Þeir eru tengdir tekjum og afkomu félagsins. Sjálfur forstjórinn eða starfsfólk hans hefur, að eigin sögn, þar hvergi nærri komið. Ákvarðanir um verð og afkomu eru vissulega ákveðnar í skýinu (skýjunum).“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: