Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Flokki fólksins skrifaði:

„Það er daprari veruleiki en mörgum grunar sem ný skýrsla Samkeppniseftirlitsins dregur upp. Þar kemur fram að olíufélögin hafi hækkað álagningu sína á eldsneyti skipulega í aðdraganda þess að nýtt kílómetragjald var kynnt til sögunnar, sem og áður en virðisaukaskattur var lækkaður. Því miður virðist þetta vera kunnuglegt stef.
Um leið og boðaðar eru breytingar sem eiga að létta álögum af fólki, hækka olíufélögin verðið fyrir fram. Þannig er hægt að sýna fram á að skattalækkunin skili sér á blaði, þótt álagningin standi eftir í hæstu hæðum og neytandinn sitji uppi með reikninginn.
FÍB, sem er vakandi fyrir hönd bifreiðaeigenda, bendir á að meðalálagning fyrstu fimm mánaða ársins 2026 sé yfir 70 krónur á lítra hér á landi á meðan hún er um 15 krónur á lítra í Svíþjóð.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins bendir á að í þessu fákeppnisumhverfi þurfi fyrirtækin ekki einu sinni að ræða saman; þau fylgjast svo náið með hverju öðru að úr verður þegjandi samhæfing á markaði.
Það er sorglegt til þess að hugsa að á meðan reynt er að mæta hagsmunum íslenskra heimila með kerfisbreytingum, séu það innbyggðir gallar fákeppninnar sem vinna gegn þeim árangri.
Hér þarf að gera betur. Allir verða að halda aftur af sér þegar kemur að verðhækkunum. Það á ekki bara við um að halda aftur af launahækkunum, heldur verður álagning fyrirtækja sömuleiðis að sýna hófsemi.“