- Advertisement -

Var Hörður Arnarson á lokametrunum sem forstjóri Landsvirkjunar?

Alþingi:

Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki og Kristrún forsætisráðherra í forvitnilegu samtali í þingsal Alþingis:

Var ákveðið að Hörður Arnarson yrði ekki endurráðinn sem forstjóri Landsvirkjunar? Stefán Vagn Stefánsson sagði þetta á Alþingi í dag:

„Því langar mig að spyrja hæstvirtan forsætisráðherra hvort það hafi verið komið til tals eða hvort það hafi verið búið að taka ákvörðun um það að endurnýja ekki starfssamning við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar.“

Auðvitað þarf að
fara ofan í kjölinn.

Kristrún forsætisráðherra sagði:

„Hörður Arnarson hefur staðið sig prýðilega í þessu starfi og ég held að það hefði nú bara að mínu mati verið skemmtilegra ef eftirmælin hans núna þessar síðustu vikur í starfi hefðu verið um hversu vel hann hefði staðið sig frekar en þetta mál sem kom upp. Með því er ég ekki að gera lítið úr því.

Fólki þykir vænt um þetta fyrirtæki. Það vill fá að vita hvað gekk á. Ég hef verið mjög skýr á því að ég hafi ekki séð neitt athugavert við það ferli sem er búið að eiga sér stað. Ég sé ekki heldur neitt athugavert við það, hvort sem það er ríkisfyrirtæki eða einkafyrirtæki, að það komi upp ágreiningur milli stjórnar og forstjóra. Það gerist á bestu stöðum. Auðvitað þarf að fara ofan í kjölinn á því ef fólk heldur að það sé eitthvað misjafnt þarna og það er nákvæmlega það sem hæstvirtur fjármálaráðherra hefur opnað á og verið bara heiðarlegur með það allt saman. Og ég fagna því bara ef þingið vill taka þetta til skoðunar enda held ég að það sé ekkert við það að athuga þegar öll gögn verða lögð fram eins og hæstvirtur ráðherra hefur sjálfur lagt áherslu á.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: